Fréttir

Hart deilt um viðtal Þorgerðar í Financial Times: „Alþjóðlegir miðlar eru lesnir í Brussel en varla Mogginn“

Mynd
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Bryndís Rut Logadóttir og Ásgeir Brynjar Torfason. Samsett mynd.

Ekki eru allir á sama máli um ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Financial Times í dag. Segir hún í viðtalinu að kvótakerfið verið áfram við lýði ef Ísland gengi í Evrópusambandið. 

„Við þurfum að halda yfirráðum okkar yfir fiskveiðiauðlindinni og að sjálfsögðu kvótakerfið og kvótaúthlutun,“ sagði Þorgerður Katrín. Í fréttinni segir jafnframt að íslensk stjórnvöld myndu alla jafna missa einhliða stjórn á fiskveiðistjórnarkerfinu og aðgangi að fiskimiðum. Jökull Sólberg Auðunsson, félagi í Sósíalistaflokknum, vekur athygli á þessu á Facebook og segir:

„Í þessu felst stór viðurkenning af hálfu ríkisstjórnar að við munum án undanþágu glata forræði yfir auðlind. Margir Já-sinnar hafa haldið því fram að vegna sögulegrar nýtingar þá þurfi ekkert að hafa áhyggjur af þessu, undanþágurnar skipti varla máli fyrir okkur því söguleg nýting tryggi aðgang og að veiðin og nýtingin verði nánast óbreytt. Getum við þá a.m.k. plís hætt að rífast um það? Þetta er grundvallarbreyting í lagalegum skilningi. Umráðin á efnahagslögsögunni færast og kerfið heitir CFP,“ segir hann.

„Með heildarundanþágu frá CFP værum að biðja um meira en bara undanþágu eða sveigjanleika. Noregur lét reyna á sambærilegar undaþágur og var hafnað. Þetta væri mikið pandórubox fyrir ESB að þurfa að láta Spán og Írland kyngja þessu. Ríkin geta lagst gegn þessu eða farið fram á sambærilegar undanþágur sem mundu leggja kerfið niður og færa völdin á þessu sviði frá ESB og niður til aðildarríkjanna. Telur fólk líklegt að þetta náist í gegn? Að litla þúfan Ísland geti velt þessu?“

Margir setja spurningamerki við þetta, þar á meðal Hallgrímur Helgason sem segir þetta villandi framsetningu hjá Jökli, það komi ekki fram í orðum Þorgerðar Katrínar heldur í orðum blaðamanns Financial Times. Bryndís Rut Logadóttir, sem var í framboði fyrir Viðreisn í Kópavogi í vor, spyr Jökul:

„Af hverju ekki bara segja já og þá vitum við fyrir víst hvað kemur út úr samningnum og getum þá tekið upplýsta ákvörðun um það hvort við viljum ESB eða ekki? Ég skil ekki af hverju þarf að vera að giska á hitt og þetta. Ekki vera besservisser, þeir eru svo agalega þreytandi.“

Jökull svarar henni og segir: „Persónulega er ég „Nei“ þó það fáist undanþágur af því ég vil ekki evru og fórn fullveldis. Ég er mjög skeptískur a þetta „láta reyna á undanþágur“ þegar það er orðið svona óraunhæft. Kostnaðurinn við ferlið er ekki óraunverulegur.“

Ágúst Brynjar Torfason, lektor í viðskiptafræði, setur einnig spurningamerki og segir:

„Í hverju felst hættan að segja já fyrst og svo nei ef þínar spekúlasjónir reynast réttar? Það er ekkert í FT greininni sem ég las alla í morgun sem að styður við nei málstaðinn og ekkert þarna sem er nein ný viðurkenning - Alþjóðlegir miðlar eru lesnir í Brussel en varla Mogginn - Það sem þú kallar stóra viðurkenningu ríkisstjórnar er nú það sem er bara einföld staðreynd og aðildarviðræðurnar felast í að semja um!,“ segir hann.

„Rökin fyrir að reyna það ekki nú geta varla verið misheppnuð tilraun Norðmanna áður en að þú fæddist eða hvað ? EES getur hins vegar vel verið fallin úr gildi löngu áður en þú nærð að verða afi…“

Frétt Financial Times.