Það styttist í sólmyrkvann þann 12. ágúst. Lögreglan á Vesturlandi er með hagnýt ráð til þeirra sem ætla að leggja land undir fót og halda á Snæfellsnes til að upplifa sólmyrkvann.
Almyrkvinn nær yfir Snæfellsnes kl. 17.45 við Ólafsvík, Rif og Hellissand.
„Það verður umferðarstýring og einstefna frá Búðum að Hellissandi. Öndverðarnesvegur verður lokaður, en boðið verður upp á rútuferðir fyrir þá sem það vilja í boði Snæfellsjökulsþjóðgarðs.“
Lögreglan hvetur fólk til að vera klætt eftir veðri, vel nestað og passa að fylla á tankinn eða hleðsluna.
„Enda er búist við því að umferðin geti gengið hægt. Nældu þér í sólmyrkvargleraugu, leggðu snemma af stað og dveldu lengur til að hinkra eftir að umferðin minnkar. Góða skemmtun á almyrkvanum.“