Fréttir

SJÁ-Margrét gerir grín að mjólkurlítramistökunum - Fer aftur með rangt mál í nýju myndskeiði

Mynd

Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, fjallar í nýju myndskeiði Samtakanna SJÁ um húsnæðiskostnað og íbúðalán. Samtökin berjast eins og nafnið bendir til fyrir því að kjósendur segi já í Þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. 

„Undanfarið erum við búin að ræða alls konar í tengslum við atkvæðagreiðsluna í ágúst og hvort Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki eða skoða það og það er búið að ræða hérna matvælaverð og alls konar sem er búið að ræða,“ segir Margrét Rós í upphafi myndskeiðisins og fær sér því næst sopa af mjólkurglasi. 

Mjólkurdrykkjan er góðlátlegt grín í fyrra myndskeið hennar frá 15. júlí þar sem Margrét Rós notaði mjólkurverð til að bera saman Ísland og Svíþjóð og fór rangt með verð mjólkurinnar í báðum löndum. 

Í nýja myndskeiðinu fer Margrét Rós aftur með rangt mál: Hún segist hafa greitt af fasteignaláni í sænsku krónunni, sem sé tengd við evru. Sænska krónan er hins vegar ekki tengd evru heldur fljótandi gjaldmiðill líkt og okkar eigin alíslenska og hefur verið það frá árinu 1992, þegar sú sænska hafði verið tengd evru í rúmt ár. 

„Þar er auðvitað stærst húsnæðislánin, held ég. Ég hef búið í Svíþjóð, átt íbúð þar og verið með húsnæðislán í öðrum gjaldmiðli, sænskri krónu, sem er tengd evru og ég borgaði svo miklu lægri vexti þar,“ segir Margrét Rós, sem segir að lægri vextir af láninu í Svíþjóð hafi þýtt að hún ætti meiri afgang um hver mánaðamót. 

„Eða maður getur valið að vinna minna eða valið sér störf meira út frá því sem gefur manni ánægju en ekki bara eftir launaseðlinum og þetta er eitthvað sem mér finnst að við á Íslandi eigum skilið að fá líka. Og til þess að geta gert það þá þurfum við að segja já til að sjá í ágúst, semja og kjósa aftur og ef að við erum á því að samningurinn sé nógu góður þá segjum við já við honum og þá fáum við sama vaxtaumhverfi og önnur Norðurlönd og það held ég að hljóti að vera endamarkmið.“