Fréttir

„Næst þegar okkur klæjar í fingurna að skrifa eitthvað niðrandi um manneskju sem er okkur ósammála“

Mynd
Pawel Bartoszek

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir mikilvægt að sýna bæði já-sinnum og nei-sinnum virðingu í umræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. 

Þetta kemur fram í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Hann segist gleðjast yfir því að sjá almenna borgara stíga fram og lýsa yfir afstöðu sinni, óháð því hvort þeir ætla að segja já eða nei í atkvæðagreiðslunni. 

Mikilvægt sé að fólk sýni hvort öðru virðingu í umræðunni, en nokkuð skorti á það: 

„Þótt sjálfur gleðjist ég vissulega örlítið meira yfir „já“-yfirlýsingunum en „nei“-yfirlýsingunum ber að sýna hvorum tveggja virðingu. Það þarf ákveðið hugrekki til að tjá opinberlega skoðun sína í máli sem vekur svona sterkar tilfinningar. Mér finnst hins vegar stundum bera á því að fólk sé dæmt út frá afstöðu sinni til þessarar einu spurningar. Þegar einhver lýsir afstöðu sinni virðist sumum mikilvægt að finna eitthvað í fortíð hans, viðskiptum, félagsskap, aldri eða uppruna til að reyna að gera lítið úr honum. Það er ekki góð nálgun.“

Pawel leggur til einfalda hugartilraun:

„Næst þegar okkur klæjar í fingurna að skrifa eitthvað niðrandi um manneskju sem er okkur ósammála skulum við spyrja okkur: Myndi ég skrifa þetta sama ef viðkomandi væri sammála mér? Ég hef sjálfur aldrei lesið færslu frá manneskju sem ætlar að kjósa „nei“ og hugsað: „Guði sé lof! Þvílíkt ólán sem það væri að hafa þessa manneskju með mér í liði!“ Þvert á móti.“

Efast ekki um heilindi nei-sinna

Pawel segir að hann efist ekki um heilindi þekktra já-sinna sem hafi mikla reynslu úr atvinnulífi og stjórnmálum. Sólveig Anna hafi markað djúp spor hjá íslenskri verkalýðshreyfingu, Ólafur Ragnar Grímsson sé einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldissögunnar og hafi verið kjörinn forseti fimm sinnum í röð, og Guðmundur Fertram hafi byggt upp þekkt alþjóðlegt fyrirtæki. 

„Ég efast ekki um heilindi neins þeirra þótt þau hafi komist að annarri niðurstöðu en ég í þessu máli.“

Pawel segir að þjóðaratkvæðagreiðslan muni ekki snúast um hverjir séu góðir Íslendingar og hverjir ekki né heldur hverjir séu gáfaðir eða vitlausir. Kosið verði um hvort veita eigi stjórnvöldum umboð til að ganga til viðræðna við ESB. Sjálfur ætlar Pawel að segja já vegna þess að hann telur Íslandi til heilla að ganga til samvinnu við þær þjóðir sem standa okkur næst.