Umboðsmaður Alþingis hefur bent manni sem fær ekki að heimsækja unnustu sína í fangelsið á Hólmsheiði á að hann geti kært synjunina til dómsmálaráðuneytisins.
Ekki kemur fram í bréfi umboðsmanns fyrir hvað unnustan situr inni á Hólmsheiði og hver uppgefin ástæða var fyrir því að meina unnustanum að heimsækja hana.
Umboðsmaður alþingis segir í bréfi til unnustans að um heimsóknir til fanga sé fjallað í lögum um fullnustu refsinga. Þar segi meðal annars að fangi sem afpláni í lokuðu fangelsi geti fengið heimsóknir frá fjölskyldu og vinum ef aðstæður í fangelsi leyfi og slíkt teljist gagnlegt sem þáttur í refsifullnustu hans. Forstöðumaður geti ákveðið að banna tilteknum mönnum að heimsækja fanga ef nauðsynlegt þyki til að viðhalda ró, góðri reglu og öryggi í fangelsi og til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað eða ef ástæða sé til að ætla að heimsóknin verði misnotuð að öðru leyti. Slíka ákvörðun skuli rökstyðja skriflega. Ákvarðanir um takmarkanir á heimsóknum séu kæranlegar til dómsmálaráðuneytis, samkvæmt lögunum.
Umboðsmaður segist benda unnustanum á þessi ákvæði laganna þar sem ekki sé unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en æðra stjórnvald, sem í þessu tilviki sé dómsmálaráðuneytið, hafi fjallað um málið. Með því sé gert ráð fyrir að stjórnvöld fái tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum sem hugsanlega sé ekki í samræmi við lög áður en leitað sé til umboðsmanns.
Þar af leiðandi sé ekki hægt að taka kvörtunina til frekari athugunar að svo stöddu. Kjósi unnustinn að bera ákvörðunina, um að banna honum að heimsækja unnustu sína í Fangelsið Hólmsheiði, undir dómsmálaráðuneytið geti hann leitað til umboðsmanna á ný þegar niðurstaða ráðuneytisins liggur fyrir, sé hann ósáttur við hana.