Öllum áhafnarmeðlimum Bandero, skipi hvalaverndunarsinnans Paul Watson, hefur nú verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir ríkisborgara utan EES felur ákvörðunin í sér endurkomubann á allt Schengen-svæðið, en fyrir EES-borgara takmarkast endurkomubannið við Ísland. Endurkomubann er að lágmarki tvö ár og hefst gildistími þess við brottför.
Áhafnarmeðlimum hefur verið heimilað að yfirgefa skipið en er gert að sæta tilkynningarskyldu til lögreglu á meðan beðið er þess að ákvörðunin komi til framkvæmdar. Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra mun sjá um framkvæmd brottvísunarinnar.