„Ég náði að blandast inn í hópinn í fimm ár en nú á að halda áfram að taka af mér,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson.
Guðmundur Felix gekkst undir handleggjaágræðslu árið 2021, hefur greinst með krabbamein. Handleggjaágræðslan var söguleg og einsdæmi en Guðmundur missti báða handleggi í slysi árið 1998. Er hann nú með staðbundið krabbamein í nefinu sem þarf að láta fjarlægja.
Sjá frétt: Guðmundur Felix með krabbamein – „Ég var að fá þær fréttir að ég er með krabba í trýninu“
„Ég er búinn að vera með eitthvað í einhvern tíma, eitthvað sem greri ekki, ég var ekki mikið að pæla í því þangað til konan mín varð alveg brjáluð og sendi mig til læknis og þeir taka sýni úr þessu, senda mig í MRI og þetta er krabbi. Hann er þess eðlis að þeir sögðu að það þyrfti að taka af mér nefið,“ segir Guðmundur Felix í viðtali í Bítinu á Bylgjunni nú í morgun.
Fyrst var honum tjáð að hann væri með krabbamein og á þeirri viku þar sem verið var að greina sýnin. „Það kemur svona vika þar sem maður hugsar að þetta sé bara komið inn í heila og þetta er bara búið. Svo fer maður þarna og það eru pínu góðar fréttir þegar þeir sögðu að ef það yrði tekið af mér nefið þá ná þeir þessu öllu. Á skrýtinn hátt var það léttir. Þetta er samt ekki beint staðurinn þar sem maður vill láta skera af sér líkamshluta, á miðju andliti.“
Læknateymi hans í Lyon bentu honum á að fá annað álit, er hann kominn í samband við lækna í Normandý sem ætla að bjarga á honum nefinu. „Læknarnir í Strassburg ætluðu bara að taka það af og setja á mig eitthvað trúðanef.“ Er aðgerðin áætluð síðar í þessum mánuði.
„Þau ætla að skera 19. ágúst. Þetta teymi, þau ætla að halda skinninu, skera eitthvað hérna undir og fletta þessu upp á ennið á mér. Taka allt innvolsið. Troða svo einhverjum grisjum inn í gatið,“ segir hann. „Í stað þess að taka bara allt nefið.“ Verður svo skinnið notað til að byggja upp nef.
Hann sá ekki fram á að hann myndi geta þetta. „Ég bara gafst upp þangað til að konan mín brotnaði niður,“ segir hann. „Hún er ekki að brota niður því að ég verð ekki með nef heldur vegna þess að hún er svo hrædd um að ég gefist upp. Ég er ekki að fara að gefast upp á meðan maður er með fólk sem að manni þykir vænt um,“ segir hann. „Ég er orðinn svolítið þreyttur sko.“
Sjálfur hefur hann ekki haft marga aðra valkosti en að vera sterkur: „Þið getið rétt ímyndað ykkur, það er fólkið í kringum mann sem er að bera mestu byrgðarnar af þessu.“