Fréttir

Máni hallast að því að kjósa já: „Það er vonlaust að mynda sér einhverja upplýsta skoðun í þessu flóði af kjaftæði“

Mynd

Máni Pétursson, umboðsmaður og fjölmiðlamaður, segir að hann hafi lítinn áhuga á að ganga í Evrópusambandið en hann hallast samt að því að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, ástæðan er í óhefðbundnari kantinum. Hann segir í færslu á Facebook að hann sé ánægður með að hægt verði að kjósa yfirhöfuð:

„Ég fagna því að það sé verið að kjósa um Evrópusambandið. Ég er alltaf glaður með að þjóðin fái að ráða. Við fáum það aldrei. Þegar kosið er til þingkosninga þá endum við alltaf uppi með stjórn sem engin vildi. Nú er það bara meirihlutinn sem ræður.“

Máni, sem er þekktur fyrir að viðra beittar skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar, segir báðar hliðar hafa orðið sér til skammar:

„Það verður hins vegar að segjast eins og er að við Íslendingar erum líklega ekki nógu vandað fólk til að fara í svona atkvæðagreiðslur. Mér finnst bæði Já-lið og nei liðið hafa bara orðið sér til skammar. Það er bara verið að ljúga á báða bóga og heiftin í þessu er ekkert eðlileg,“ segir Máni. 

„Það hefði líklega verið skynsamast að ráða hóp sérfræðinga sem hefði sent öllum bækling um kosti og galla ESB og við hefðum getað metið þetta hlutlaust. Það er vonlaust að mynda sér einhverja upplýsta skoðun í þessu flóði af kjaftæði sem kemur frá báðum aðilum.“

Já til að sjá hvor er meiri lygari

Sjálfur hefur hann lítinn áhuga á sjá Ísland ganga í Evrópusambandið, að sama skapi hefur hann enn minni áhuga á veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu:

„Ég er samt farinn að hallast á að segja já í þessari atkvæðagreiðslu. Ekki vegna þess að einhver hefur sannfært mig um ágæti ESB: Heldur vegna þess að þegar samningur kemur loks á borðið þá get ég séð í hvorum hópnum eru meiri bullarar; Liðið sem sagði að það væri ekki hægt að semja við ESB eða liðið sem sagði að það væri hægt að semja við ESB,“ segir Máni.

„Sem sagt já til að sjá hvor ykkar er meiri lygari.“

Færsla Mána hefur vakið mikla athygli, þingmaðurinn fyrrverandi Björn Leví Gunnarsson tekur undir með hinum:

„Það er það sem ræður úrslitum hjá mér líka,“ segir Björn Leví. Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, bætir við:

„Eina ástæðan sem gæti mögulega fengið mig til að segja já við aðild væri til að lesa færslurnar frá þér þegar þú ert kominn með auka lag á rjómatertuna - embættismenn og einhverja Evrópuþingmenn að sýsla með íslenska hagsmuni. Það væri alvöru fóður í mánaröflið.“