Kona sem býr í miðborginni varð fyrir þeirri sérkennilegu upplifun í gær að kaffidrykknum sem hún hafði pantað sér hjá Hygge við Barónsstíg var stolið. Önnur kona tók kaffið og sú hafði ekki pantað sér drykk sjálf. Konan sem varð fyrir kaffistuldinum segir að verknaðurinn hafi augljóslega verið undirbúinn.
„Hún hleypti mér inn um dyrnar þó að hún væri komin á undan, var þarna fyrir utan, og svo hleypti hún mér á undan sér en fylgdi mér þétt á eftir. Þeir þekkja mig starfsmennirnir þarna og þeir voru alveg vissir um að hún væri með mér. Hún var ekki að kaupa neitt og þeir héldu að hún væri að bíða eftir kaffinu fyrir mig,“ segir konan, sem sækir þetta ágæta kaffihús reglulega.
„Ég sat og beið, ætlaði að taka þetta með, þú veist, takeway, og það var enginn að panta á eftir okkur. Svo sit ég bara þarna og horfi á hana labba með þetta út. Ég spurði strákinn í afgreiðslunni hvort það gæti verið að hún hefði fengið bollann minn. Hann sagði já og hann hélt að hún væri með mér af því hún lét þannig. Hún hlýtur að hafa verið rosalega kaffiþyrst.“
Hún segist ekki hafa hugmynd um hvort konan var útlendingur eða Íslendingur. Hún hafi ekki borið það með sér að stríða við erfiðleika heldur var ósköp venjuleg í útliti og yfirbragði.
Aðspurð hvort þetta hafi verið óþægileg upplifun þá segir konan að svo hafi ekki verið. „Ég var bara hissa. Þetta var fyndið,“ segir hún og segist ekki hafa heyrt um viðlíka atvik áður.
„Það var svolítið sérstakt að ég var þarna með hund í kerru sem allir þarna voru að missa sig yfir. En hún var sú eina á staðnum sem veitti hundinum enga athygli. Það sýnir hvað hún var ákveðin í því sem hún ætlaði að gera.“