Fréttir

Anna gerir stólpagrín að hneykslaða fólkinu: „Þegar ég var komin í gólfið gat ég ekki haldið hlátrinum í mér“

Mynd
Anna Kristjánsdóttir.

Vélstjórinn og samfélagsrýnirinn Anna Kristjánsdóttir gerir stólpagrín að viðbrögðunum við lögregluaðgerðinni á Akureyri um helgina þar sem unglingar voru handteknir með leikfangabyssur. Samkvæmt lögreglu voru fimm menn um tvítugt handteknir fyrir að ógna fólki, þeir voru látnir lausir að lokinni skýrslutöku en í samtali við RÚV sagði aðstoðaryfirlögregluþjónn að ekki væri útilokað að þeir yrðu kærðir fyrir vopnalagabrot. 

Miklar umræður sköpuðust vegna málsins, þar á meðal sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins að við þyrftum að gera okkur grein fyrir raunveruleikanum og bregðast við strax.

Þá sagði hlaðvarpsstjórnandinn Þórarinn Hjartarson að það ætti að vísa mönnunum úr landi. 

Akureyringum hafi létt að drengirnir væru aðkomumenn

Anna Kristjáns segir að hún geti ekki annað en hlegið: 

„Ég get ekki annað en hlegið að “Virkum í athugasemdum” sem fóru geist um netið í fyrrakvöld í hneykslan sinni á ætluðum múslimum sem voru í byssuleik á Akureyri. Eitthvað reyndu þeir samt að afsaka sig með að lögreglan, þar með talin sérsveitin, hefði bara verið að gera skyldu sína,“ segir Anna í færslu á Facebook. 

„Lögreglan hafði vissulega eitthvað til síns máls með því að benda á að drengirnir væru ekki frá Akureyri og létti þá mörgum Akureyringnum úr því að þetta voru bara aðkomumenn (að sunnan) með fíflalæti.“ 

Gerir hún stólpagrín að málinu: „En hvað um vopnasalann, þennan með útlenda nafnið “Kids Coolshop?” sem seldi drengjunum byssurnar. Er ekki hægt að ákæra hann fyrir sölu á ólöglegum vopnum úr því að byssurnar voru svona líkar alvöru byssum?“ 

Kúrekaleikur í verslun á Tenerife

Rifjar hún upp kúrekaleiki úr sínum ungdómi og atvik á Tenerife í heimsfaraldrinum vorið 2020: „Það voru allskyns öryggisráðstafanir í verslunum, takmarkaður fjöldi sem mátti vera inni í einu og allir þurftu að vera með hanska því grímur voru ófáanlegar. Einn daginn er ég kom í búðina var öryggisvörðurinn vopnaður hitabyssu sem hann miðaði á hvern þann sem inn kom, smellti af og skoðaði á litlum skjá hitann á viðkomandi viðskiptavin. Svo kom að mér, öryggisvörðurinn miðaði á höfuðið á mér og hleypti af. Rétt eins og í alvöru káboj og indjánaleikjum í gamla daga, hlýddi ég og féll til jarðar,“ segir Anna. 

„Þegar ég var komin í gólfið gat ég ekki haldið hlátrinum í mér lengur horfandi á skelfingarsvipinn á öryggisverðinum og allir sem sáu þetta hlógu nema vesalings öryggisvörðurinn sem fannst þetta ekkert fyndið, en neyddist þó til að hleypa mér inn í búðina.“