Fréttir

Tilkynnt um 14 minka síðan í gær

Mynd

Fjórtán ábendingar um minka hafa borist til aðgerðastjórnar Mosfellsbæjar frá því á hádegi í gær. Þar af eru þrír sem gætu verið úr Dalsbúi, í Mosfellsdal, þaðan sem þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum í vikunni. Flestir minkarnir voru fangaðir innan öryggisgirðingar búsins en ekki er vitað hvað margir ganga lausir.

Þetta kemur fram í frétt RÚV

Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir, segir auðvelt að þekkja villta minka frá eldisminkunum sem sleppt var úr Dalsbúi. Eldisminkar séu stærri og feitari en villtir minkar. Hvað varðar mikinn meirihluta minkanna sem tilkynnt hefur verið um er talið að um sé að ræða villta minka sem ekki hafi verið í búinu. Þóra segir í viðtali við RÚV

„Villti minkurinn er yfirleitt dökkbrúnn, hann er svona grennri og snaggaralegri. Hreyfir sig hraðar og auðveldar. Eldisminkurinn er stærri og feitari og pínu klunnalegri í hreyfingum og þá líka við veiðar.“

Þóra segir að fremur auðvelt sé að greina á milli hvort um eldismink eða villtan mink sé að ræða, út frá hegðun þeirra. Eldisminkar séu líklegri til að koma til fólks þar sem þeir eru vanir að fá fæði hjá fólki. Einnig séu eldisminkar líklegri til að sækja í manngerða hluti og skjól en villtur minkur láti sig hverfa verði hann var við mannaferðir.