Lögreglan greinir frá því í dagbók sinni að hún hafi fengið tilkynningu um mann í mjög annarlegu ástandi í Kópavogi.
Hann reyndist ganga um með barefli í hendi, öskrandi og með ógnandi tilburði.
Maðurinn var handtekinn og er vistaður í fangageymslu þar til hann verður viðræðuhæfur.