Fréttir

Forstjóri Landhelgisgæslunnar gagnrýndur fyrir að líkja aðgerðinni gegn Bandero við James Bond mynd

Mynd
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Skjáskot RÚV.

Nokkuð hefur kveðið að gagnrýni á ummæli Georgs Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, vegna þess orðalags hans að líkja aðgerðum gegn skipi hvalaverndunarsinnans, Paul Watson, Bandero, við atriði í James Bond mynd. 

Landhelgisgæslan yfirtók skipið á fimmtudagskvöld, í samráði við sérsveit Ríkislögreglustjóra, eftir að skipið sigldi án heimildar inn fyrir 12 mílna lögsögu íslensku landhelginnar, ógnaði áhöfn Hvals 9 og skipverjar neituðu að fylgja fyrirmælum. 

Georg lýsti aðgerðinni svo í viðtali við RÚV

„Þetta er hættuathöfn. Þetta fór þannig fram að við vorum með þrjá öfluga aðgerðabáta og skipverjar á þessu erlenda skipi, Bandero, sýndu mótþróa, þeir neituðu öllum fyrirmælum, skipstjórinn var ítrekað beðinn um að stöðva ferð skipsins, hann svaraði engu og sinnti engum fyrirmælum. Þeir héldu fullri ferð og okkar menn þurftu að fara um borð í skipið á rúmsjó á 15 mílna hraða. Það var skuggalegt að sjá. Þetta var, ja, eins og í James Bond mynd, ef svo má segja. En aðgerðin gekk mjög vel.“

Georg sagði ennfremur: „Þarna skiptir engu máli hvað mönnum finnst um hvalveiðar. Þetta eru íslenskir hagsmunir, þetta er íslensk lögsaga, þetta eru íslenskir sjómenn.“ 

Strákar í stríðsleik

Stefán Pálsson, sagnfræðingur, segist upplifa forystu Landhelgisgæslunnar eins og stráka í stríðsleik. Hann skrifar á Facebook: 

„Í þorskastríðunum, þegar Landhelgisgæslan lenti í raunverulegum útistöðum við herskip eins öflugasta hernaðarveldis heims og skipherrarnir urðu að þjóðhetjum, þá gættu þeir þess alltaf vandlega að koma fram nánast eins og umferðarlögregluþjónar sem vildi bara svo til að væru á skipi en ekki að hleypa gæsahópum yfir götuna. Þetta var eflaust öðrum þræði meðvitað til þess að draga fram muninn á nær vopnlausum gæsluskipunum og erlenda atvinnuhernum.

Í seinni tíð upplifir maður forystulið Gæslunnar eins og stráka í stríðsleik. Og einhvern veginn finnst manni maður alltaf vera örlítið óöruggari heldur heldur en hitt þegar forstjórinn mætir í viðtal.“

Egill Helgason fjölmiðlamaður segir James Bond líkinguna vera óheppilega og spaugilega í senn: 

„Ég er ekki alveg viss um að sé heppilegt að yfirvöld upplifi svona aðgerðir eins og James Bond mynd – alveg burtséð frá því hvað manni finnst um hvalveiðar. Nokkuð spaugilegt.“

Hafa smá húmor

Skiptar skoðanir eru um þetta og Ólafur Garðarson segir: „Allt í lagi að hafa húmor fyrir þessu. Þetta er bara hans persónulega tilfinning/hugrenningar.“