Dagný Ósk Vestmann er gift tveggja barna móðir sem greindist með brjóstakrabbamein árið 2018. Hún greindist aftur með meinið árið 2023 og hafði það þá dreift sér í eitla, lifur og bein.
Baráttan við þennan illvíga sjúkdóm hefur valdið miklu álagi á Dagnýju og fjölskyldu hennar, sem nærri má um geta, en einnig orðið þeim að fjárhagslegri áskorun. Meginmarkmið Dagnýjar núna er að nýta vel þann tíma sem hún á eftir með ástvinum sínum til að skapa góðar minningar sem munu lifa um ókomin ár.
Hafdís Magnúsdóttir hefur með leyfi Dagnýjar hrundið af stað fjársöfnun fyrir fjölskylduna. Fór hún yfir málið í pistli á Facebook-síðu sinni sem hún og Dagný veittu DV góðfúslega leyfi til að greina frá og birta. Hafdís segir í pistli sínum:
„Dagný greindist með brjóstakrabbamein árið 2018 og gekk þá í gegnum erfiða meðferð af mikilli þrautseigju og styrk. Árið 2023 greinist Dagný aftur og er meinið búið að dreifa sér í eitla, lifur og bein.
Dagný hefur þotið í gegnum hinar ýmsu lyfjameðferðir og það er orðið ansi takmarkað hvað sé eftir að reyna, sjúkdómurinn er ansi erfiður og flókinn og hefur hún verið mjög óheppin að engin lyf virðast hægja á vexti meinanna.
Dagný er gift Kidda sínum og eiga þau tvö börn sem eru 17 og 5 ára. Þrátt fyrir allt sem hún hefur þurft að ganga í gegnum er stærsta ósk hennar einföld – að geta nýtt tímann sem hún á með Kidda og börnunum þeirra, skapað með þeim fallegar minningar, hlegið, ferðast ef tækifæri gefst og notið þeirra augnablika sem skipta mestu máli. Þær minningar verða ómetanlegur fjársjóður fyrir þau öll.
Síðustu ár hafa veikindin ekki aðeins haft gríðarleg áhrif á heilsu Dagnýjar heldur einnig á fjárhag fjölskyldunnar. Vegna langvarandi veikinda og meðferða hefur Dagný ekki getað stundað vinnu og því hefur fjárhagslegt álag aukist verulega.“
Reikningsupplýsingar söfnunarinnar eru hér að neðan
„Með hennar samþykki hef ég ákveðið að stofna þessa söfnun. Markmiðið er að létta fjárhagslegar áhyggjur fjölskyldunnar og gefa Dagnýju tækifæri til að gera það sem hún þráir mest – að verja dýrmætum tíma með Kidda og börnunum og skapa með þeim minningar sem munu lifa áfram um ókomin ár.
Hvert framlag, stórt sem smátt, skiptir máli. Það mun hjálpa Dagnýju að einbeita sér að því sem skiptir hana mestu máli á þessum tíma, án þess að fjárhagsáhyggjur vegi jafn þungt.
Ef þú hefur ekki tök á að leggja fram framlag værum við afar þakklátt ef þú gætir deilt söfnuninni áfram.“
Reikningurinn er skráður á eiginmann Dagnýjar.
Kristinn Bjarki Hjaltason
Kt. 160183-5439
0702-15-835439