Fréttir

Þorgerður Katrín og Grímur opinbera óhróðurinn og svivirðingarnar - Spjótum beint að börnum þeirra

Mynd
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Grímur Atlason.

Ljóst er að umræðan vegna þjóðaratvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er orðin á köflum ansi svæsin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur birt nýtt myndband þar sem hún bregst við svívirðingum og óhróðri í hennar garð vegna atkvæðagreiðslunnar. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar hefur fylgt fordæmi hennar og sagt frá svívirðingum og beinlínis lygum sem hann, eiginkona hans og dóttir þeirra hafa orðið fyrir vegna stuðnings síns við að aildarviðræður hefjist á ný. Þorgerðurr Katrín gerir sérstaka athugasemd við að börn hennar séu dregin inn í svívirðingarnar í hennar garð.

Þorgerður Katrín hefur áður birt samskonar myndband þar sem hún svarar grófum ummælum sem hafa verið látin falla í hennar garð í netheimum.

Sjá einnig: Þorgerður Katrín tekur snúning á kommentakerfinu - „Ég var reyndar í brjóstahaldara“

Í nýju myndbandi endurtekur Þorgerður Katrín leikinn og bregst við ýmsum svívirðingum í sinn garð í netheimum.

Fyrstu ummælin eru frá manni sem kallar ráðherrann eiturpöddu án þess þó að stafsetja það orð rétt. Þessu svarar Þorgeður Katrín með eftirfarandi hætti:

„Já, ég vil nú vekja athygli á því að pöddur þær eru mikilvægar í lífríkinu.“

Annar maður kallar Þorgerði Katrínu kerlingu og vill að hún verði dregin fyrir landsdóm:

„Það eru stór orð. En mér finnst náttúrulega sérstakt að það eigi að draga mann fyrir landsdóm fyrir það eitt að leyfa þjóðinni að ráða, að treysta þjóðinni,“ segir Þorgerður Katrín.

Drusla

Þriðji maðurinn segir ráðherranum að koma ekki aftur en skrifar það orð með tveimur n-um. Þessu svarar Þorgerður Katrín svona:

„Ég er ekki að fara neitt. Ekki neitt.“

Fjórði maðurinn kallar Þorgerði Katrínu druslu en hann stafsetur orðið ekki rétt:

„Drusla, já. Druslugangan hún var gengin í vikunni til þess að minna okkur á að við eigum alltaf að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Þannig að ég er bara stolt drusla.“

Kona nokkur skipar Þorgerði´Katrínu að þegja en hún er ekki á því:

„Nei, ég er nú ekki svo viss um það. Mér finnst ágætt að taka samtöl við fólk þannig að nei, ég ætla ekki að halda kjafti.“

Klepp

Einn maður vill senda utanríkisráðherra á Klepp:

„Það er alltaf mikilvægt að hlúa að andlegri heilsu fólks og hafa aðbúnaðinn í lagi þannig að við þurfum að halda áfram að passa upp á fólkið okkar.“

Í einum ummælum er því haldið fram að gataður smokkur sé áreiðanlegri en Þorgerður Katrín:

„Mér finnst gott að fólk hugsi til þess að það eigi að nota smokka en það eru líka falleg börn og góð sem að verða búin til með götóttum smokkum.“

Tík

Ein ummæli í myndbandinu eru ansi gróf:

„Hunskastu beint til helvítis, andskotans, helvítis óþveratíkin þín. Helvítis föðurlandssvikatík.“

Þorgerður Katrín dæsir eilítið yfir þessum ummælum en svarar þeim svona:

„Ég ætla samt að halda áfram að fylgja mínum hugsjónum og það er að gera allt fyrir Ísland.“

Kona nokkur segist í ummælum vilja þagga niður í Þorgerði Katrínu með því að setja límband fyrir munninn á henni:

„Nei, það held ég að sé svolítið óþægilegt. Alls ekki. Takk, sama og þegið.“

Í lok myndbandsins segir Þorgerður Katrín um ummæli af þessu tagi almennt:

„Það er hægt að hafa svolítið gaman af þessu og reyna að sjá húmorinn í öllum þessum kommentum. En það er eitt sem ég vil biðja ykkur um. Mér finnst ekki maklegt þegar verið er að draga börnin manns inn í þetta.“

Birtast þá í myndbandinu ummæli um son hennar, Gísla Þorgeir Kristjánsson landsliðsmann í handbolta, þar sem fullyrt er að hann muni ekki þurfa að gegna herskyldu í væntanlegum Evrópuher af því móðir hans sé svo valdamikil. Spurt er einnig hvort hann starfi í Brussel en svarið við því er auðvitað nei. Gísli Þorgeir býr í Magdeburg í Þýskalandi þar sem hann spilar sem atvinnumaður með handboltaliði borgarinnar.

Ungmenni

Þorgerður Katrín segir að lokum:

„Ég vil bara minna á það að íslensk ungmenni, hvort sem það er Gísli eða aðrir, þau eru ekki að fara í neinn Evrópuher. Bara alls ekki. Það er ekkert sem kveður á um það. Við höfum alltaf neitunarvald í slíkum málum en leyfið börnunum mínum að vera í friði.“

 

Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar þakkar Þorgerði Katrínu fyrir myndbandið í Facebook-pistli.

Hann segir að hann og eiginkona hans Helga Vala Helgadóttir hafi ekki farið varhluta af slíku persónuníði vegna stuðnings síns við að aðildarviðræðurnar hefjist á ný og nú hafi dóttir þeirra verið dregin inn í þetta. Grímur segir hins vegar að þau hjónin og þá sérstaklega Helga Vala hafi mátt þola svona svívirðingar og óhróður í tölvuverðan tíma:

„Eftir hún fór á þing þá keyrði þetta fljótlega alveg um þverbak og þá sérstaklega eftir Covid. Það hjálpaði heldur ekki að sumir af samstarfsmönnum hennar á þingi ýttu undir drulluna með því að vera stöðugt að ýja að því að hún væri í business samhliða þingstörfum. Hún átti hreinlega að hafa mokað inn peningum og þá alveg sérstaklega með innflutningi sínum á hælisleitendum. Hún reyndi oft að leiðrétta þetta með því að birta skattaskýrslur sínar og benda á að lögmannsréttindum hefði hún skilað inn við upphaf þingsetu og ekki sótt aftur fyrr en hún hætti á þingi. Það breytti litlu og menn eru enn að ljúga og ljúga.“

Evrópa og dóttirin

Grímur segir að eftir að Helga Vala tók sæti í stjórn Evrópuhreyfingarinnar hafi ný bylgja svívirðinga riðið yfir og í þetta sinn hafi dóttir þeirra, Ásta Júlía landsliðskona í körfubolta, orðið fyrir þessu:

„Fær yfir sig endalausar spýjurnar frá ömurlega rökþrota fólki sem getur ekki fær nein rök fyrir máli sínu önnur en þau að Helga Vala sé: landráðakona, mússavinur, heimsk, fábjáni, fáviti, vitleysingur og allt þar á milli. Við bjuggumst reyndar ekki við öðru því miður. En nú er komið nóg. Í vikunni birti dóttir okkar mynd af sér þar sem hún sagðist ætla að segja já í ágúst. Mæta þá ekki til leiks skítatungurnar, sem hugsanlega eru bottar, með sínar hefðbundu kveðjur.“

Í ummælum við færslu Ástu Júlíu er hún kölluð tuðra sem vilji að ofbeldismenn verði fluttir til landsins svo að móðir hennar fái fleiri verkefni í lögmannsstörfum sínum.

Grímur segir að lokum að þótt fólk sé opinberar persónur eigi það ekki að þurfa að þola svona nokkuð:

„Það eru ýmsir sem segja að opinberar persónur verði að þola hitt og annað - það sé bara hluti af þeirra veruleika. Ég er algjörlega ósammála. Við eigum aldrei að umbera dónaskap og persónusníð. Birtum þetta, segjum frá þessu og hættum að vera meðvirk með skítkasti og níð!“