Eins og komið hefur fram fóru Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í gærkvöldi og tóku yfir stjórn skipsins. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr um kvöldið þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík.
Sjá einnig: Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn Bandero
Mynd
Á samfélagsmiðlum Bandero má sjá myndir og myndbönd frá aðgerðunum.