Fréttir

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn Bandero

Mynd
Bandero. Mynd: Facebook

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í gærkvöldi og tóku yfir stjórn skipsins. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr um kvöldið þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.  Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík.

Á sjötta tímanum í gær fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að hvalveiðiskipinu Hval 9. Áhöfnin á Hval 9 tilkynnti Landhelgisgæslunni að skipinu hefði verið ógnað eins og segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en engin svör bárust frá skipinu. Þá hélt þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, þegar í stað á vettvang og bað áhöfn Bandero að yfirgefa svæðið en við því var ekki orðið. Jafnframt var áhöfnin á varðskipinu Freyju kölluð út. Þegar varðskipið kom á staðinn skömmu síðar var skipstjóra Bandero fyrirskipað að stöðva vélar skipsins, en skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá kölluð út til að flytja sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í varðskipið Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum. 

Á tólfta tímanum í gærkvöldi fóru sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar um borð í Bandero, handtóku skipstjóra þess og tóku yfir stjórn skipsins. Bandero var fært til hafnar í Reykjavík.

Aðgerðin var unnin í náinni samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra auk þess sem dómsmálaráðuneytið var upplýst á öllum stigum hennar.