Fréttir

Nýnasisti réðist á skrifstofu Sósíaldemókrata og reyndi að kveikja í

Mynd
Sósíaldemókratar hafa áður verið skotmörk nýnasista. Mynd/Getty

Nýnasisti réðist á skrifstofu Sósíaldemókrata í bænum Sölvesborg. Hrópaði hann slagorð, braut glugga og dreifði eldfimum vökva.

Greint er frá málinu í The Local og fleiri miðlum í Svíþjóð.

Árásin átti sér stað á þriðjudag í bænum Sölvesborg, tæplega 10 þúsund manna bæ í suðausturhluta landsins. Var henni beint gegn skrifstofu Sósíaldemókrataflokksins.

Ætlaði að brenna húsið niður

Nýnasisti veittist að skrifstofunni seint um kvöld. Vitni heyrði hann hrópa og kalla slagorð nasista áður en hann byrjaði að skemma. Gekk hann hringinn og braut marga stóra glugga í húsinu. Við rannsókn málsins fann lögregla að maðurinn hafði hellt eldfimum vökva inn um og við húsið. Bendir það sterklega til þess að maðurinn hafi ætlað að kveikja í skrifstofunni en maðurinn hafi verið truflaður áður en honum tókst það.

Skrifstofan er staðsett í verslunarhverfi og hefði eldsvoði í byggingunni hæglega geta borist yfir í nálægar byggingar og valdið stórbruna.

Nýnasismi á uppleið

Málið hefur vakið ugg í Svíþjóð og er talið vera eitt af mörgum merkjum þess að öfga hægristefna og nýnasismi séu að eflast á Norðurlöndum. Sérstaklega hættulegir séu einangraðir einstaklingar sem verða róttækir af því að lesa og horfa á öfgafullt hatursefni á netinu.

Þá hefur uppgangur öfga hægriflokka, svo sem Svíþjóðardemókratanna, losað um hömlur róttækra einstaklinga. Eru þeir óhræddari við að veitast að innflytjendum, minnihlutahópum og öðrum sem þeir telja óæskilega. Vinstri og sóíaldemókratískir stjórnmálaflokkar hafa áður verið skotmörk öfga hægrimanna. Til að mynda fjöldamorðingjans Anders Breivik sem myrti tugi ungliða í norska Verkamannaflokknum árið 2011.

Hvika hvergi

Fulltrúar Sósíaldemókrataflokksins á svæðinu hafa fordæmt árásina og lýst reiði sinni en einnig staðfestu og ákveðni um að beygja sig ekki fyrir pólitísku ofbeldi. Ofbeldi og hótanir myndu ekki hindra stjórnmálastarf þeirra eða rýra skuldbindingu þeirra gagnvart gildum lýðræðisins.

Hins vegar þurfi flokkurinn að endurskoða öryggisráðstafanir sínar. Bæði sjálfboðaliðar og starfsmenn standa frammi fyrir raunverulegum ógnunum við öryggi sitt.

Öll gögn rannsökuð

Lögregla hefur ekki haft hendur í hári árásarmannsins þegar þetta er skrifað en í tilkynningu kemur fram að málið sé litið grafalvarlegum augum. Öll gögn verði rannsökuð, bæði úr myndavélum, DNA og fleira. Rannsóknin sé flokkuð sem hryðjuverkarannsókn.