Fréttir

Jón Viðar fellir dóm um umtalað viðtal við Kristrúnu: „Jafnvel gallharðir Sjálfstæðismenn hafa fengið í hnén“

Mynd
Jón Viðar Jónsson.

Gagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson tjáir sig um nýlegt viðtal Kristrúnar Frostadóttur í hlaðvarpinu The Rest is Politics og segir þjóðina mega vera stolta af frammistöðu hennar. Segir hann gallharða Sjálfstæðismenn hafa fengið í hnén yfir viðtalinu. 

Jón segist í færslu á Facebook ekki hlusta mikið á pólitísk hlaðvörp á netinu, en The Rest is Politics er eitt þeirra sem hann tékkar stundum á. 

„Og það eru engar ýkjur að við megum vera stolt af frammistöðu okkar meira en frambærilega forsætisráðherra í samtali við þá kappana Alastair Campell og Rory Turk (enda sé ég hér á FB að jafnvel gallharðir Sjalfstæðismenn hafa fengið í hnén). Það sem ég hef skannað af kommentum við samtalið er allt á eina bókina lært. Harðsvírðustu „neitararnir“ hefðu gott af því að renna yfir þau, þó ég þekki mitt fólk of vel til að halda að það lækki eitthvað í þeim rostann og nái þeim niður á jörðina.“ 

 

Jón segir leikmynd hlaðvarpsins vera flotta og innihaldsríka. 

„Annars vegar geta kunnugir séð glitta í Íslendingasögur ÍF og svo eru tvær hillur með gulbrúnum og augljóslega háöldruðum bókakosti. Þar hefur nokkrum svörtum möppum verið lauslega hent í neðri hillu til að gera þetta ekki alltof sviðsetningarlegt, heldur bara eins og hversdagslegan part af daglegu starfsumhverfi ráðherra. Og hljóðlát en skýr návist íslenska fánans áréttar skilaboðin: íslenskt sjálfstæði er ekki til sölu. Þetta finnst mér virkilega vel gert.“