Stefán Ólafsson félagsfræðingur segir það mikla einföldun að segja að gengisfelling krónunnar sé trygging gegn atvinnuleysi. Hann segir í grein í Heimildinni í dag að í vor hafi atvinnuleysi á Íslandi verið svipað og í ríkjum Evrópusambandsins, það sé vegna ofurhárra raunvaxta.
Athygli vekur að Stefán er að tala þvert á orðræðu Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar og einn stofnenda Áfram Ísland, en hún og Stefán hafa verið nánir samverkamenn í verkalýðsbaráttunni síðustu misseri. Í greininni titlar hann sig sem „prófessor í félagsfræði“ en í greinum þar á undan er hann titlaður: „prófessor emeritus við HÍ og starfar sem sérfræðingur hjá Eflingu.“ Er hann enn skráður sem starfsmaður Eflingar.
Stefán með P.S.
Líkt og fram hefur komið hefur Sólveig Anna nefnt atvinnuleysi sérstaklega í tengslum við afstöðu sína sem og framgöngu Evrópusambandsins í fjármálakreppunni: „Vegna þess að evran var þar gjaldmiðill hafði litla getu til að bregðast við þeim efnahagsáföllum sem dundu yfir nema með miklum niðurskurði, gríðarlegu háu atvinnuleysi og mikilli aðför að hagsmunum alþýðufólks, vinnandi fólks, og þar voru stofnanir Evrópusambandsins helstu leikendurnir í því að knýja á um hversu hrikaleg meðferðin var á fólkinu í Grikklandi. Svo var líka komið hrikalega komið fram við alþýðufólk á Spáni, Portúgal og Írlandi eins og ég vona að flestir muna,“ sagði Sólveig Anna í nýlegu viðtali.
Í lok greinar sinnar bætir Stefán við P.S. þar sem hann segir: „Ég er ekki að taka afstöðu til aðildar að ESB og upptöku evru með þessum skrifum, heldur aðeins og skerpa á staðreyndum sem margir fara ranglega með í hita umræðunnar.“
„Það var allur munurinn sem krónan skilaði“
Í greininni segir Stefán að það séu margar einfaldanir í gangi í umræðunni. „Þau sem vilja halda í krónuna nefna gjarnan að hún sé trygging gegn atvinnuleysi. Gengisfellingar í kreppum eða á samdráttarárum tryggi þetta, kaupmáttur sé lækkaður kröftuglega og hratt en í staðinn á að heita að við sleppum við atvinnuleysisvanda,“ segir hann.
„Allt eru þetta einfaldanir. Gengisfellingar eru enginn lúxus fyrir launafólk og þær tryggja okkur heldur ekki gegn atvinnuleysi.“
Í fjármálakreppunni 2008 til 2010 hafi krónan fallið um nærri 50%. „Skuldabyrði jókst gríðarlega og margir misstu heimili sín. Samt fór atvinnuleysið hér upp í um 7,5%. Á sama tíma fór atvinnuleysi í ESB-ríkjunum upp í um 9,5% að meðaltali. Það var allur munurinn, eftir risavaxna gengisfellingu!“
Það hafi svo verið mistök hjá Evrópusambandslöndunum að skera niður þegar kreppan var að ganga niður. „Niðurskurðurinn keyrði hagkerfi þeirra aftur niður í enn dýpri kreppu sem hækkaði svo atvinnuleysið þar enn frekar (upp í 10-11%). Þetta voru fyrirséð áhrif niðurskurðarstefnu nýfrjálshyggjunnar - sem var ekki bara óþörf á þessum tímapunkti heldur beinlínis stórskaðleg,“ segir Stefán.
„Í Kóvid-kreppunni lækkaði gengi krónunnar nokkuð og atvinnuleysi fór hér upp í um 6% 2020-2021. Á sama tíma fór atvinnuleysi í ESB-ríkjunum upp í 7%. Það var allur munurinn sem krónan skilaði.“
Stefán segir að hann hafi lengi talað fyrir hávaxtastefnan gegn verðbólgu sé kostnaðarsöm. „Krónan er því ekki sérstök trygging gegn atvinnuleysi, jafnvel þó hún falli mikið í kreppum, með tilheyrandi kaupmáttarrýrnun launafólks. Það eru hagstjórnin og markaðsaðstæðurnar sem ráða mestu um atvinnuleysið hverju sinni - og svo tækniþróun til lengri tíma.“