Pálmi Gestsson leikari vekur athygli á furðulegri hegðun margra þeirra á samfélagsmiðlunum Facebook, sem felst í því að setja hláturkall við færslur og fréttir um alvarleg málefni. Sum hver sem eru harmleikir þar sem fólk hefur látist.
„Ég hef undanfarið verið að velta fyrir mér þessum „flissurum” þessum hláturköllum sem fólk setur við jafnvel alvarlegustu mál eins og þessum gróðureldum þar sem fjöldi fólks hefur dáið og tugþúsundir manna hafa misst heimili sín. Þetta er ótrúlegur harmleikur. Og meirihluti þeirra sem bregðast við hlær, flissar. Það er háttur flissarana að þeir hafa ekkert að segja, koma ekki fram með neina skoðun, bara flisskall. Ég tek eftir því ef ég varpa fram einhverri skoðun á fb þá flykkjast þeir hláturkarlarnir margir (yfirleitt þeir alltaf þeir sömu) og flissa eins og þeir eigi lífið að leysa.“
Segir Pálmi hafa gert tilraun og farið á Facebook-síður þeirra sem flissuðu sem mest af því sem hann hafði sett fram, „þó það væri ekkert hlægilegt”. Setti Pálmi síðan hláturkall við sumar færslurnar á þeirra síðum þó þær væru ekkert hlægilegar. „Ég hef grun um að þeim hafi ekki fundist það fyndið og lái þeim hver sem vill.“
Með færslu sinni birtir Pálmi skjáskot af Facebook-deilingu RÚV um frétt í gær um loftslagsbreytingar og viðtal við Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands. Í viðtalinu kom fram að Meginástæðan fyrir vaxandi skógareldum í Evrópu á sumrin er aukin tíðni þrálátra hitabylgna sem stafa af hlýnun jarðar.
Fréttinni var deilt á Facebook kl. 21.29 í gær, mánudag, og þegar þetta er skrifað hafa 202 látið sér líka við fréttina, þar af 106 með hláturkalli. Hafa „flissararnir“ því heldur gefið í, því þeir voru aðeins 44 þegar Pálmi skrifaði færslu sína.
Pálmi segir það bara fínt ef fólk er svona hláturmilt „en ég hef stundum grun um að þetta eigi að vera niðurlægjandi viðbrögð við málefninu og sem er til umræðu og jafnvel höfundinum. Þetta er ákaflega hvimleitt, eins og í þessu um hlýnun jarðar og harmleikinn sem er að verða vegna þess.
Þarna kemur sprenglærður, virtur og viðurkenndur vísindamaður með djúpstæða þekkingu á málefninu og segir okkur hvað er að gerast og þá koma Pétur og Páll og fullt af allskonar kjánum sem enginn veit deili á og hvað gera þeir? Jú setja hláturkall og flissa eins og vísindamaðurinn sé hálfviti og þeir sjálfir hafi miklu meiri þekkingu á því sem er að gerast. Ótrúlegt alveg.“
Minnst 12 þúsund látnir vegna hitabylgju sumarsins
Þess má geta að samkvæmt frétt RÚV þann 17. júlí síðastliðinn benda tölulegar upplýsingar um dauðsföll í níu Evrópulöndum til þess að að minnsta kosti 12 þúsund umframdauðsföll megi rekja til hitabylgju sumarsins. Talan gæti átt eftir að hækka þegar sambærilegar upplýsingar berast frá fleiri löndum og þegar líður á sumarið. Staðreynd sem er ekki aðhlátursefni hjá flestum.