Fréttir

Titringur eftir upprifjun ráðuneytisstjórans fyrrverandi: „Veit líklega meira um málið en nokkur Íslendingur sem tjáð hefur sig um það“

Mynd
Per Ekström, Marinó G. Njálsson og Erna Bjarnadóttir. Samsett mynd.

Grein Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóra sem gætti hagsmuna Álandseyja við inngöngu Finnlands í Evrópusambandið á sínum tíma, hefur vakið mikla athygli og umræður en Per svarar þeim sem hafa haldið því fram að ekki sé hægt að fá ótímabundnar undanþágur frá Evrópusambandinu í aðildarviðræðum. 

Í grein sinni á Vísi í gær rifjar Per, sem hefur verið búsettur á Íslandi í tæp þrjátíu ár, upp reynslu sína af möguleikum á að fá varanlegar undanþágur þegar lönd sækja um aðild að ESB.  

„Álandseyjar eru með sérstöðu og heimastjórnarfyrirkomulag líkt og Færeyjar. Aðaltungumálið er sænska. Sérstaðan felst fyrst og fremst í því að einungis fólk með „heimastjórnarríkisborgarrétt“ má eiga fasteign, reka fyrirtæki og kjósa til löggjafarþings og sveitarstjórna,“ segir Per. 

Álandseyjar hafi fyrir löngu ákveðið að vera herlaust svæði og þar að auki er eyjaklasinn mjög háður góðum samgöngum. Kröfurnar um fasteignir og tollfrjálsa sölu í ferjusiglingum samræmast ekki aðalregluverki Evrópusambandsins.

„Sérstök bókun („Ålandsprotokollet“) var tekin upp í samninginn sem hluti af ESB regluverkinu og er ekki hægt að breyta henni nema með samþykki allra aðildarríkjanna. Með öðrum orðum er um varanleg ákvæði að ræða.“

Hann segir að lokum að eftir rúm 30 ár séu flestir Finnar ánægðir með veru sína í Evrópusambandinu og upptaka evru hafi svo auðveldað viðskipti og skapað stöðugleika. „Eftir árás Rússlands á Úkraínu 2022 hefur verið lokað á öll viðskipti við Rússa sem hefur leitt til erfiðara efnahagsástands í Finnlandi. Á sama tíma þarf Finnland að leggja mikið fé í varnarmál vegna ástandsins. Meginástæður þessa erfiða efnahagsástands liggja því ekki í aðild Finna að ESB.“

Viti líklega meira en nokkur Íslendingur sem hefur tjáð sig

Ráðgjafinn Marinó G. Njálsson segir að þarna hljóti að vera komin niðurstaða í umræðuna um Finnland í samhengi við þjóðaratkvæðagreiðsluna.

„Jæja, nú getur fólk hætt að tala um að erfið staða finnska hagkerfisins sé aðild að ESB og evrunni að kenna. Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í heimastjórninni á Álandseyjum sem tók virkan þátt í ESB málum í Finnlandi á þessum tíma (1994-95) og veit líklega meira um málið en nokkur Íslendingur sem tjáð hefur sig um það,“ segir Marinó.

„Ég reikna hins vegar ekki með að fólk láti sér segjast og það eigi eftir að birtast greinar, þar sem reynt verður að leiðrétt þennan „misskilning“ Pers.“

Reynsla Pers sé frá tíunda áratugnum

Hagfræðingurinn Erna Bjarnadóttir bendir á í færslu á Facebook að reynsla Pers sé frá árinu 1994.

„Síðan þá hefur Evrópusambandið tekið miklum breytingum. Lissabon-sáttmálinn hefur tekið gildi, regluverk sambandsins hefur þróast og aðildarferlið er nú byggt á öðrum áherslum og mun ítarlegra regluverki en gilti fyrir rúmum þrjátíu árum.“

Þá segir hún í svari við færslu Marinós að það sé ekkert annaðhvort eða varðandi evruna og efnahagsstöðu Finnlands. 

„Að viðskiptabann við Rússland og aukin varnarmálaútgjöld hafi haft mikil áhrif á finnska hagkerfið útilokar ekki að aðild að evrusvæðinu hafi haft áhrif á hvernig hagkerfið gat brugðist við áfallinu. Hagfræðin snýst ekki aðeins um orsakir áfalla heldur einnig um aðlögun að þeim,“ segir Erna. „Þú ert því að rugla saman orsök áfallsins og aðlögun að áfallinu. Enginn heldur því fram að evran hafi valdið áfallinu. Umræðan snýst um hvort evran hafi gert aðlögun finnska hagkerfisins erfiðari. Það er allt önnur spurning.“

Marinó hafnar því að rugla saman atriðum: „Ég er ekki að rugla neinu saman, heldur vitna í mann sem þekki betur til en við bæði.“