Fréttir

Stór skjálfti á Nesjavöllum í nótt

Mynd

Jarðskjálfti af stærð 4,1 mældist við Nesjavelli nú 36 mínútur yfir miðnætti í nótt og fannst vel á suðvesturhorni landsins. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur fylgt minniháttar eftirskjálftavirkni. 

Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar mældist skjálfti af stærð 4,6 á svipuðum slóðum. Jarðskjálftavirkni er þó algeng á svæðinu.