Samkvæmt heimildum DV varð alvarlegt atvik í flöskumóttöku Grænna skáta að Hraunbæ 123 síðastliðinn föstudag. Starfsmaður móttökunnar brenndist þá mjög illa.
Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, staðfestir atvikið í samtali við DV,en segist geta tjáð sig mjög takmarkað um það, þar sem það sé í rannsókn lögreglu.
„Þetta tengist ekki bilun eða neinu slíku,“ segir Jón Ingvar, en staðfestir að starfsmaður sé þungt haldinn vegna brunaatviks.
„Hann brenndist mjög illa. Hann er til meðferðar á sjúkrahúsi í Danmörku,“ segir hann ennfremur og bætir við: „Þetta er bara mjög leiðinlegt mál sem er til rannsóknar hjá lögreglu og erfitt fyrir mig að tjá mig frekar um það.“
DV hafði samband við Hildi Rún Björnsdóttur, lögreglufulltrúa hjá Lögreglustöð 4. Hildur segir að lögregla muni ekki veita upplýsingar um málið.