Fréttir

Allt logar eftir að auðkýfingurinn var hafður að háði og spotti: „Og hvílík yfirgengileg móðgunargirni!“

Mynd
Jakob Bjarnar Grétarsson, Björn Leví Gunnarsson, Agamemnon og Karen Kjartansdóttir. Samsett mynd.

Töluverðar umræður sköpuðust eftir að blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson hæddist að öllum þeim sem gerðu stólpagrín að áformum auðkýfingsins Elon Musk um að láta gervigreind gera nýja og „sagnfræðilega réttari“ útgáfu á Ódysseifskviðu. 

Líkt og DV fjallaði um nýverið kom yfirlýsing Musk í kjölfar harðrar gagnrýni Musks á stórmynd Christophers Nolans, The Odyssey, sem hefur notið gríðarlegra vinsælda. Kvikmyndin, sem var að hluta til tekin upp hér á Íslandi hefur fengið á sig gagnrýni frá Musk og fleirum fyrir að vera of „woke“ og „and-hvít“. Í kjölfarið stigu fram fjölmargir þekktir einstaklingar sem gerðu stólpagrín að áformunum. 

Sjá frétt: Þekktir Íslendingar gera stólpagrín að áformum auðkýfingsins

Jakob Bjarnar deilir fréttinni og hæðist að þeim: 

„Helvíti bökuðu þau Elon Musk. Ég sé ekki hvernig hann ætti að þora svo mikið sem láta á sér kræla eftir svona útreið?“

Miklar umræður sköpuðust um þennan brandara og Karen Kjartansdóttir samfélagsrýnir svaraði honum:

„Æi góði, hvers vegna má ekki hæðast að manni sem vill gera sagnfræðilega rétta kvikmynd um góðsögu sem myndaðist mikið til úr munnlegri geymd yfir margar aldir. Og hví í ósköpunum sárnar þér að einhver hæðist að jafn heimskulegri hugmynd. Ertu orðin svona vitlaus að þú haldir að þetta sé persónuleg árás á Musk en ekki athugasemdir við skilning hans á listaverki?“

„Hverskonar yfirgengileg strámennska er þetta?“

Jakob Bjarnar fann sig knúinn til að skýra mál sitt:

„Þó að mér finnist þessi öskur the usual suspects á ríkasta mann heims, héðan úr Ballarhafi alveg frámunalega hallærisleg þá þýðir það ekki að ég sé þar með sammála manninum? Bara langt því frá. Hvar kemur það fram? Hvað þá að èg sé móðgaður fyrir hans hönd?,“ spyr hann.

„Hverskonar yfirgengileg strámennska er þetta? Og hvílík yfirgengileg móðgunargirni! Ef það er potað í þennan háheilaga hóp truflast hann: Hvað kom yfir þig Jakob? Hér höfum við samanpökkuð og heiðskýr öll helstu einkenni einsýnna dyggðaskreytinga sem gera vókið gersamlega óþolandi.“

Þingmaðurinn fyrrverandi Björn Leví Gunnarsson setur spurningamerki við þetta:

„En ákveður samt að gera grín að gagnrýnendum hans. Er það af því að gagnrýnin er ósanngjörn kannski? Ef ekki, ef gagnrýnin er bara fólk að tjá skoðanir sínar - ert þú þá ekki að hoppa á þennan meinta woke vagn? Annars, ef gagnrýnin er sanngjörn - hvað ertu þá að meina með þinni athugasemd?“

Hæddist að augljóslega fáránlegri hugmynd

Karen segir svo í færslu á Facebook:

„Ég hæddist að augljóslega fáránlegri hugmynd einhvers karls um að gera „sagnfræðilega nákvæma“ kvikmynd eftir goðsögu sem inniheldur meðal annars eineygða kýklópa, sírenur sem ýmist eru sýndar sem hálffuglar eða hálffiskar, norn sem breytir sjómönnum í svín og sjávarguði sem hafa bein afskipti af framvindunni,“ segir hún.

„Viðkvæmir menn og aldraðar „pick-me-girls“ hafa brugðist við eins og ég hafi framið eitthvert stórkostlegt menningarlegt níðingsverk og komist að þeirri niðurstöðu að ég sé auðvitað „vók“ fyrir vikið.“

Karen heldur áfram:

„Ég hélt í einfeldni minni að flest fólk gæti verið sammála um að hugmyndin um sagnfræðilega nákvæmni í þessu samhengi væri í meira lagi spaugileg. En í ljósi þess andlega sársauka sem ég virðist hafa valdið biðst ég innilega afsökunar og vona að framleiðslan gangi vel, kýklóparnir verði trúverðugir og svínabreytingarnar fyllilega í samræmi við bestu fáanlegu heimildir.“

Erla Hlynsdóttir, blaðamaður á Gímaldinu, segir í hæðnistón: „Mér sveið mikið að Nolan léti alla, meira að segja kýklópinn, tala bandarísku. Hlakka til að fá bíómynd þar sem þetta verður rétt gert.“