Áhyggjur fólks af heilsu Donald Trump Bandaríkjaforseta aukast með hverjum deginum. Ekki aðeins andlegri heilsu hans sem virðist hraka með hverjum deginum heldur einnig líkamlegri heilsu. Ekki er langt síðan náðist ljósmynd af honum með fullorðinsbleyju.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Ekki er langt síðan greint var frá því að mikil hlandlykt væri komin af forsetanum. Þetta hefði fólk meðal annars fundið að finna fyrir á heimsmeirstaramótinu í knattspyrnu í sumar. Er talið að hann sé kominn á þvagræsislyf og geti ekki lengur stjórnað þvagláti sínu.
Mörgum brá einnig í brún þegar Trump mætti í viðtal sjónvarpsþáttarins 60 Minutes með risastóra „bungu“ um mjaðmasvæðið. Greinilegt var að forsetinn, sem er orðinn áttræður, væri í fullorðinsbleyju.
Viðtalið, sem Norah O´Donnell tók, fjallaði meðal annars um banatilræðið en umræðan var ekki það sem sat eftir hjá áhorfendum.
„Þegar Trump situr í viðtalinu sínu í þættinum 60 mínútur sýnir hann ekki aðeins hversu alvarlega sjúkur hann er orðinn af offitu heldur einnig að hann notar mjög þykka fullorðinsbleyju,“ sagði tónlistarmaðurinn Bill Madden á samfélagsmiðlum.
„Þetta er eins og dýna,“ sagði annar netverji.
Hafi kúkað á sig við upptökur
Það er hins vegar hugsanlegt að Trump hafi gengið með fullorðinsbleyju í langan tíma, jafn vel áður en hann varð forseti.
En Noel Casler, sem vann með Trump í þáttunum The Apprentice, upplýsti árið 2020 að Trump réði ekki við hægðir sínar.
„Hann kúkaði oft á sig við upptökur á The Apprentice, hann hefur enga stjórn á hægðum sínum,“ sagði Casler. „Hann er búinn að ganga með bleyjur síðan á tíunda áratugnum en ég varð vitni að þessu á fyrsta áratug þessarar aldar á The Celebrity Apprentice. Það þurfti að stoppa upptökur og skipta á honum.“