Fréttir

Arna greinir frá ofbeldi sem hún sat ein með í áratugi – „Þess vegna er svo mikilvægt að við höfum göngu eins og Druslugönguna“

Mynd
Arna greinir frá ofbeldi sem hún varð fyrir og sat ein með í áratugi.

Arna Magnea Danks, leikkona og aktívisti, greindi eftir Druslugönguna í gær frá hrottalegu ofbeldi sem hún varð fyrir þegar hún var barn og þegar hún var nýlega komin út sem trans kona. Í áratugi sat hún ein með skömmina. Það sé út af málum sem þessum sem það sé svo mikilvægt að ganga Druslugönguna á hverju ári.

Í myndbandinu varar Arna við lýsingum. Þær lýsi grófu ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi hóps stráka.

„Mig langaði að segja nokkur orð um hvers vegna það er svo mikilvægt að við stöndum saman og göngum þessa göngu,“ segir Arna. „Því svo margar okkar og mörg sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi þögðu í svo mörg ár.“

Þagði í þrjátíu ár

Arna greinir frá atviki sem átti sér stað þegar hún var 11 ára gömul, haustið 1982. Þá réðust átta strákar á hana.

„Þetta var hápunkturinn á einelti sem hafði varað í tvö ár. Grófu og ógeðslegu einelti þar sem ég var kölluð alls konar ógeðfelldum nöfnum. Ég þótti skrýtin og öðruvísi. Mildasta orðið sem var notað yfir mig á þessum tíma var frík,“ segir hún.

Árásin átti sér stað nálægt fiskbúð. Þeir börðu Örnu og kyrktu hana og neyddu hana til að kyngja úldnum fiski og tróðu honum inn á hana og inn í hana.

„Ég talaði ekki um þetta í þrjátíu ár. Ég bar skömmina. Ég efast um að nokkur af gerendunum hafi borið nokkra skömm,“ segir hún. „Ég gerði mér ekki einu sinni grein fyrir að þetta var nauðgun fyrr en ég talaði um þetta þrjátíu árum seinna við sálfræðing sem sagði við mig: Þú gerir þér grein fyrir að þér var nauðgað. Ég gerði mér grein fyrir að þetta var hrottalegt og ógeðfellt ofbeldi með mjög alvarlegar afleiðingar. En ég bar þessa skömm í þrjátíu ár.“

Hafnað á lögreglustöð í Bretlandi

Arna greinir einnig frá öðru atviki sem átti sér stað í Bretlandi árið 2004. Það er þegar maður sem hún taldi vera vin sinn fékk að gista en réðist á hana um nóttina og nauðgaði henni. Þá hafði hún verið komin út sem trans kona einu ári áður.

Hún var í áfalli í nokkra daga á eftir þetta og ætlaði að kæra málið. Hún fór á lögreglustöðina við Liverpool stræti og var yfirheyrð þar frammi á gangi, fyrir framan alla. Eftir lýsingarnar sagði lögreglumaðurinn hins vegar að það væri enginn tilgangur með því að kæra. Hann sagði:

„There is no point in you pressing charges. People like you are always on your knees anyway.“

Eftir þessa reynslu hrökklaðist Arna aftur inn í skápinn. Hún kom ekki aftur út fyrr en árið 2018.

„Ég upplifði þessa höfnun frá kerfinu sem margir þolendur upplifa,“ segir Arna. „Ég fékk ekki rödd. Ég þagði og sagði ekki frá þessu í mörg ár. Eina manneskjan sem ég sagði frá þessu var sálfræðingurinn minn. Að bera skömm er rosalega erfitt og stór baggi. Þess vegna er svo mikilvægt að við höfum göngu eins og Druslugönguna þar sem við erum að taka ákveðið vald til baka.“

Fjórum sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðisofbeldi

Þetta sé ekki síst mikilvægt fyrir hinsegin þolendur. Rannsóknir sýna að ein af hverjum fjórum konum á Íslandi verða fyrir ofbeldi. Trans konur eru hins vegar fjórum sinnum líklegri til þess að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi.

„Það er ofboðslega lítið talað um þetta. Það er talað um okkur sem einhverja ógn,“ segir hún að lokum og reifar til dæmis ný lög í Bretlandi þar sem trans konur eru skildaðar til að nota karlaklósett. Þetta hafi hins vegar orðið til þess að þær hætti einfaldlega að fara út að skemmta sér og einangrast.

Sem og umræðan um regnbogafánann sem margir agnúast yfir. „Að sjá regnbogafánann veitir okkur öryggi í heimi þar sem við erum alltaf óörugg,“ segir Arna.