Hundaeigandi sem keypt hafði þjónustu hundapassara á höfuðborgarsvæðinu og trúað þeirri konu fyrir hundi sínum á meðan hún var að heiman fékk símtal frá lögreglunni, þess efnis að hundurinn væri í umsjá lögreglunnar. Hundapassarinn væri í þannig ástandi að hún væri ekki fær um að sinna hundinum.
Frá þessu er greint í Facebook-hópnum Hundasamfélagið. Hundurinn hafði sést ganga laus um hverfið í langan tíma, án taums eða beislis. Einnig segir í færslu eiganda dýrsins:
„Samkvæmt þeim upplýsingum sem við fengum sást konan einnig ganga um á sokkunum, reyna að fara inn í rangar íbúðir og síðar fór hún með hundinn á hundasvæði. Þar var lögreglan kölluð til og hundurinn okkar var að lokum fluttur í örugga umsjá hjá Dýrahjálp.
Áður en við fengum hana til að passa hundinn okkar hittum við hana persónulega. Við ræddum við hana, hún svaraði öllum spurningum okkar og lofaði að fara vel með hundinn. Hún kom mjög vel fyrir og virtist traustsins verð, þannig að við höfðum enga ástæðu til að ætla að eitthvað svona gæti gerst.
Það sem mér finnst sérstaklega mikilvægt að láta fólk vita af er að hún rekur einnig Facebook-síðu þar sem hún auglýsir og býðst til að taka að sér heimapössun á hundum. Þess vegna finnst mér mikilvægt að aðrir hundaeigendur séu meðvitaðir um þessa reynslu þegar þeir velja sér hundapassara.“
Einnig kemur fram í færslunni að hundurinn er óhultur eftir þessa vanrækslu. Eigandinn hvetur fólk til að viðhafa varkárni við val á hundapössurum.
„Brenndi næstum því húsið mitt til grunna“
Umrætt atvik er nýskeð en konan hefur boðist til að sinna gæludýragæslu á heimilum fólks á meðan það er að heiman, t.d. í fríum erlendis. Hefur konan auglýst þjónustu sína á Facebook-síðu merktri starfseminni. Gæludýrapössun er leyfisskyld starfsemi en óvíst er hvort allir hundapassarar séu með leyfi til starfseminnar. Samkvæmt umræðum í Facebook-hópnum Hundapössun Hundasamfélagins er dagsverð fyrir þjónustuna frá 3 til 9 þúsund krónur.
Frásögnin hér að ofan varð til þess að kona að nafni Lisa Räv ákvað að stíga fram í Hundasamfélaginu, nafngreina hundapassarann drykkfellda, og greina frá reynslu sinni af þjónustu konunnar:
„Hún annaðist hundinn minn og ketti mína heima hjá mér. Þegar ég kom heim eftir viku var hún meðvitundarlaus á veröndinni minni með brunna sígarettu og glas af gini. Hún brenndi næstum því húsið mitt því koddinn var byrjaður að brenna. Ég lét lögregluna fjarlægja hana og lögreglan sagði mér meira að segja að hún mætti ekki einu sinni keyra bíl (líklega án ökuréttinda). Hún var líka með áfengi í bílnum sínum og hefur því líklega ekið undir áhrifum.“
Eva birtir myndir af aðkomunni á heimili sínu eftur vikudvöl konunnar og birtast nokkrar þeirra í samsettri mynd með fréttinni. Einnig kemur fram að staðsetningartæki hundsins sýndi að konan hafði ekið daglega í vínbúð.
Eva segist gera sér grein fyrir því að hundapassarinn er veikur alkóhólisti og hafi hún þess vegna sagt henni að leita sér hjálpar og hún myndi þá ekki nafngreina hana. En þegar hún sá að sagan hafði endurtekið sig hjá öðrum hundaeiganda var henni nóg boðið og ákvað því að stíga fram með sögu sína:
„En það er ekki hægt að gera þetta aftur og aftur við fólk og þetta snýst um lifandi dýr hér. Ég hef enga samúð með því lengur. Hún drakk áfengið mitt, skildi eftir óhreinindi og tóma kaffibolla alls staðar, sinnti ekki dýrunum mínum og brenndi næstum því húsið mitt til grunna.“
Eva sagði í stuttu samtali við DV:
„Ég vona að enginn láti framar hundana sína í hendur {X}. Ég fyrirgaf henni þegar þetta gerðist og sagði henni að leita sér hjálpar og ég myndi ekki segja neitt um þetta í hundagrúppunni nema ég sæi að þetta hefði endurtekið sig. Þess vegna birti ég þessa færslu núna. Því þetta gerðist ekki bara einu sinni.“
DV sendi hundapassaranum skilaboð og spurði hvort hún sinnti hundapössun, til að hefja samtal. Hún svaraði með því að blokka blaðamann. Samkvæmt heimildum hyggst hún leita sér hjálpar við áfengissýki sinni.