Starfsmenn dýragarðs í Bretlandi hafa gefist upp á að fanga wallaby kengúru sem slapp fyrir þremur árum síðan. Kengúran hefur sést annars lagið en ávallt náð að komast í burtu.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Kona að nafni Vicky Williams var á leið heim þriðjudagskvöldið 21. júlí síðastliðinn í norðurhluta Devon héraðs skammt frá Bristol þegar hún sá nokkuð óvenjulegt. Við henni blasti lítil kengúra.
„Ég reif upp símann af því að ég vissi að enginn myndi trúa því sem ég sá, wallaby kengúru í vegkantinum,“ segir Williams. En wallaby kengúrur eru lítil tegund kengúra, sem Íslendingar þekkja ágætlega enda voru dýr af tegundinni til sýnis í Sædýrasafninu í Hafnarfirði á sínum tíma.
„Ég hafði áhyggjur af henni því ég vissi ekki hvaðan hún var að koma eða hvert hún var að fara. Ég vildi ekki reyna að grípa hana og hræða hana í burtu,“ segir Williams.
En kengúran var sallaróleg yfir þessum fundi þeirra. Williams keyrði að kengúrunni sem sat óhrædd. Birti hún myndband á samfélagsmiðlum en þá kom í ljós að margir höfðu orðið varir við kengúruna á undanförnum árum.
Kom í ljós að kengúran hafði sloppið úr dýragarði fyrir þremur árum síðan. Margar tilraunir hafa verið gerðar til þess að ná henni en aldrei hefur það tekist, jafn vel þó að stór hópur manna hafi reynt það.
Kengúran var í góðum holdum og virtist una sér vel í breskri náttúru. En tegundin er eins og flestir vita frá Ástralíu.
„Þú sérð hana einu sinni en svo ekki í marga mánuði,“ segir Danny Reynolds, starfsmaður Exmoor dýragarðsins. „Hún hefur sigrað okkur.“