Fréttir

Safna undirskriftum gegn vindmyllunum við Lagarfoss – „Óafturkræf og veruleg spjöll á landslagi“

Mynd
Vindmyllur eru umdeildar. Mynd/Landsvirkjun

Rúmlega 300 undirskriftir hafa safnast gegn áformum um vindmyllur við Lagarfoss. Í færslu með undirskriftasöfnuninni er fullyrt að áformin feli í sér óafturkræf veruleg spjöll á landslaginu.

„Við undirrituð skorum á sveitarstjórn Múlaþings að hafna áformum um uppsetningu tveggja 160 metra hárra vindmylla við Lagarfoss. Jafnframt krefjumst við þess að hlustað sé á áhyggjur íbúa, landeigenda og ferðaþjónustuaðila á svæðinu,“ segir í færslu með undirskriftasöfnun á island.is.

Óafturkræf spjöll

Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 300 manns skrifað undir áskorunina. Hún stendur yfir til sumarloka, það er 31. ágúst næstkomandi og verður þá afhent sveitarstjórn Múlaþings og Skipulagsstofnun.

„Áformin fela í sér óafturkræf og veruleg spjöll á landslagi, náttúru og nærumhverfi. Við höfnum þeirri mynd sem dregin er upp í umhverfismati framkvæmdaaðila,“ segir í færslunni.

Sagt er að risavaxin mannvirkin verði í óhófi við umhverfið í kring. Það er vindmyllurnar eiga að verða um 160 metrar á hæð. Mannvirki af þeirri stærðargráðu gnæfi yfir landslagið og verða sýnileg úr mikilli fjarlægð.

Þá sé framkvæmdin einnig fordæmisgefandi. Það er þó að einungis sé rætt um tvær vindmyllur í dag þá muni samþykkt þeirra skapa fordæmi og ryðja brautina fyrir frekari og stórfelldari vindorkuuppbyggingu á svæðinu. Það án þess að heildræn stefna liggi fyrir í málaflokknum.

Mikilvæg varpsvæði

Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum þá vill Orkusalan reisa vindmyllurnar tvær við Lagarfossvirkjun í tilraunaskyni. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggst hins vegar gegn áformunum, meðal annars vegna þess að af vindmyllunum myndu skapast mikil sjón- og hljóðmengun.

Náttúruverndarstofnun hefur sagt að skoða þurfi málið betur. Svæðið er mikilvægt fyrir fuglalíf, meðal annars er það varpsvæði fyrir lóm, flórgoða og kjóa.

Vindmyllurnar eiga að vera 9,9 megawött en það þýðir að þær eru rétt undir mörkum þess að þurfa að gangast undir fullt umhverfismat. Það er þær falla þá í svokallaðan B-flokk.

Íbúar ekki spurðir

Stofnandi undirskriftalistans er Helga Rún Steinarsdóttir. Í færslu á samfélagsmiðlum bendir hún á að lóðin í kringum Lagarfoss sé iðnaðarlóð og því þurfi ekki leyfi fyrir framkvæmdum yfir 9,9 megawöttum.

„Það náði sem betur fer ekki í gegn og Skipulagsstofnun setti þeim fyrir að framkvæma fullt mat á umhverfisáhrifum. Til varð rosalega fín umhverfismatsskýrsla þar sem eftirfarandi þættir voru metnir: gróður, fuglalíf, landslag og ásýnd, hljóðvist, útivist og ferðamennska. Sjálfri finnst mér vanta þarna inn hvað íbúum og nærsamfélaginu finnst um aðgerðina, en það er annar kafli. Auk þess týndu þeir öllu sem mætti teljast jákvætt út úr skýrslunni og skelltu því inn, en slepptu mikilvægum atriðum,“ segir hún. „Í skýrslunni sem kom út (sem er kostuð af Orkusölunni) er allt fallega teiknað upp. Hvernig ferðamanninum væri alveg sama um svona framkvæmdir og að einhverjir sem slysuðust til þess að vera heima í nágrenninu þegar þeim var réttur spurningalisti sæju ekki að þetta hefði áhrif á ferðamanninn. Það er eitt, en hvergi var komið inn á það hvað okkur íbúunum fyndist um svona framkvæmdir.“