Lögreglan í Virginíufylki í Bandaríkjunum hefur fundið tvo gíraffakálfa sem var rænt fyrir ári síðan. Sakamálarannsókn er í gangi vegna málsins.
Eins og segir í frétt tímaritsins People þá hefur lögreglan í Virgínufylki tilkynnt um að tveir gíraffakálfar, sem var rænt fyrir ári síðan, hafi fundist heilir á húfi.
Áður höfðu dýraverndarsamtökin PETA og leikkonan Alicia silverstone heitið 50 þúsund dollurum í fundarlaun fyrir þá sem myndu finna gíraffana.
Gíraffarnir eru í eigu dýragarðsins Natural Bridge Zoo, sem er staðsettur í vesturhluta fylkisins. Þeir dvelja nú tímabundið í athvarfi á meðan fylgst er með heilsu þeirra.
„Þessi niðurstaða endurspeglar staðfestu ríkissaksóknara til að tryggja öryggi almennings, að vernda samfélagið okkar og láta þá sem brjóta lögin axla ábyrgð,“ segir í tilkynningu saksóknara fylkisins.
Ekki hefur verið greint frá því hvar gíraffarnir fundust eða hverjir eru grunaðir um verknaðinn. Aðeins að gíraffakálfarnir séu óhultir og að sakamálarannsókn sé í gangi vegna málsins.
PETA hafa hins vegar greint frá því að hvarf gírafffana tengist baráttu um yfirráð og eignarhald dýragarðsins. Dýragarðurinn hefur áður komist í kastljós fjölmiðlanna fyrir miður jákvæða hluti. Það er árið 2023 þegar yfirvöld þurftu að fjarlægja um 100 dýr úr garðinum vegna tilkynningar dýralæknis um slæman aðbúnað, óhreina aðstöðu og skort á heilbrigðisþjónustu. Höfðu fjölmörg dýrahræ og dýraleifar fundist í garðinum.