Fréttir

Látbragðsleikari sakaður um kynferðislega áreitni – Beraði sig og löðraði í matarolíu

Mynd
Hegðun Lux þykir undarleg og óhugnanleg.

Lögreglan í Massachussetts fylki í Bandaríkjunum hefur handtekið látbragðsleikara fyrir áreitni. Maðurinn beraði sig fyrir framan konur og makaði matarolíu á líkama sinn.

Þrjár konur hafa sakað 29 ára látbragðsleikara að nafni Hernan Villagran Lux um áreitni. Eins og segir í frétt miðilsins Boston 25 News þá beraði hann sig fyrir framan þær alveg niður á nærföt og löðraði sig í matarolíu.

„Konurnar greina frá samskiptum við ákærða þar sem hann starði á þær og brosti á þær á það sem þær lýsa sem „mjög óþægilegan og hreinskilnislega ógnvekjandi hátt“,“ sagði saksóknarinn Andrew Mange.

Lux neitar sök í málinu en hann er sakaður um áreitni í þrjú skipti. Dómari hefur einnig krafist þess að hann gangist undir sakhæfismat á geðsjúkrahúsi.

Margir vegfarendur hafa orðið varir við Lux og undarlegt háttarlag hans og fatnað.

„Ég var svolítið hræddur við hann,“ segir maður að nafni Chris Neofotistos við sjónvarpsstöðina NBC 10. „Með pípuhatt, Drakúla málningu á andlitinu, svarta skikkju, staf. Mjög óhugnanlegur.“