Fréttir

„Við viljum fá hundana okkar aftur“

Mynd
Vina og Myrkva. Aðsendar myndir.

„Við viljum fá hundana okkar aftur,“ segir ungur heimilisfaðir sem var vörslusviptur hundunum sínum tveimur, Vinu og Myrkvu, í september í fyrra. Vina er hálfur ástralskur fjárhundur og hálfur Border collie golden en Myrkva er Mini-schnauzer. Maðurinn og unnusta hans kærðu vörslusviptinguna til atvinnuvegaráðuneytisins í janúar síðastliðnum, þar hefur málið enn statt og eru þau að skoða að fara með málið fyrir dóm ef kæran til ráðuneytisins ber ekki árangur.

Þau vilja ekki koma fram undir nafni en þau eru miklir dýravinir og búa í Suðurnesjabæ ásamt tveggja ára syni þeirra, tveimur köttum og tveimur naggrísum. Þau eru miður sín yfir því að hafa misst hundana og hefur þetta haft mikil áhrif á fjölskyldulíf þeirra. „Okkur fannst mjög mikil breyting á stráknum okkar eftir að hundarnir voru teknir,“ segir hann. 

Maðurinn hafði átt Vinu áður en hann kynntist unnustu sinni en Myrkva er afkvæmi hunds sem þau höfðu átt áður.

Aðstæðurnar ekki með besta móti

Samkvæmt reglugerð um velferð gæludýra skal aðbúnaður og aðstaða hunds hæfa stærð hans, tegund og aldri með tilliti til hvíldar og hreyfingar. Samkvæmt lögum um velferð dýra er Matvælastofnun (MAST) heimilt að svipta umráðamann dýri og er MAST heimilt að láta aflífa dýr sem stofnunin hefur umráð yfir vegna vörslusviptingar að liðnum tveimur sólarhringum takist hvorki stofnuninni né eiganda að finna viðeigandi aðstæður eða aðbúnað fyrir dýr. 

Maðurinn viðurkennir að aðstæður á heimili þeirra hafi ekki verið með besta móti þegar gerðar voru athugasemdir við aðbúnaðinn í heimsókn MAST í mars 2025. „Þau komu akkúrat þann dag sem við vorum í endurskipulagningu heima, það voru föt úti um allt og rétt þegar Myrkva var nýbúin að kúka á gólfið,“ segir hann. Þau hafi verið að tæma herbergi sem hafði verið notað sem geymsla þar sem eftirlitsmenn fundu tvo þornaða þvagbletti. Einnig voru gerðar athugasemdir við tölvusnúrur undir tölvuborði inni í stofu. Í bréfi frá MAST segir að við eftirfylgni í maí 2025 hafi verið búið að gera úrbætur. 

Hundarnir teknir þegar þau voru erlendis

Faðir hennar er búsettur erlendis á afskekktum stað og þegar þau ákváðu að heimsækja hann þá vildu þau gera mikið úr ferðinni og dvelja hjá honum í mánuð. Sömdu þau við vinkonu sína um passa hundana á meðan. Vinkonan hafði áður passað hundana, var það þegar þau skruppu út á land til að sækja hluti til að fara með til útlanda. 

„Ég viðurkenni alveg að húsið var slæmt þá,“ segir maðurinn. „Ástæðan fyrir því að allt var úti um allt var vegna þess að við höfðum verið að taka barnaherbergið og stofuna í gegn.“ Þau svæði íbúðarinnar sem voru ætluð hundunum hafi þó verið komin í lag þegar þau héldu til útlanda. „Við keyptum líka tíu daga passa á hundahótel þannig að þá daga sem vinkona okkar gæti ekki komið til þeirra, þá gæti hún farið með þá þangað.“

Mynd
Myrkva og Vina. Myrkva er Mini-schnauzer en Vina er hálfur ástralskur fjárhundur og hálfur Border collie golden. Aðsend mynd.

Þegar þau voru erlendis sjá þau á eftirlitsmyndavél fulltrúa MAST og lögreglu taka hundana. Vinslitin voru algjör við vinkonuna. „Við höfum ekki talað við hana síðan.“

Óttuðust þau það versta þegar þau sáu Vinu og Myrkvu hvergi auglýstar. MAST tók ákvörðun um varanlega vörslusviptingu í lok október í fyrra, á þeim tíma var parið búið að leita til dýralögfræðings. „Við leituðum til hans um leið og við sáum hundana tekna. Hann var að hjálpa okkur fram í mars,“ segir maðurinn. Síðar leituðu þau til lögmanns sem hefur staðið í bréfaskriftum við ráðuneytið vegna málsins. 

Fallast megi á að aðstæðurnar hafi batnað

Fram kemur í bréfi MAST í desember, þar sem ákvörðunin var staðfest, að ljóst sé að aðstæður á heimilinu hafi batnað. „…búið er að bæta umgengni og aðbúnaður er nú með þeim hætti að hægt er að halda hunda þar.“ Það sé þó ekki hægt að fullyrða að aðstæður hafi breyst til frambúðar og er vísað í ítrekuð afskipti MAST og annarra opinberra aðila af aðstæðum og aðbúnaði á heimilinu. „Þó að fallast megi á að umhirða og aðbúnaður hafi batnað á heimili […] og […] liggur ekki fyrir á þessum tíma hvort þeim muni takast að viðhalda aðstæðum þannig.“ 

Í bréfinu segir að í heimsókninni í mars 2025 hafi verið gerðar alvarlegar athugasemdir sem hafi verið bætt úr við eftirfylgni í maí, í september hafi verið skráð alvarleg frávik við aðbúnað og umhirðu. „Af gögnum málsins sem aðili máls hefur undir höndum liggur fyrir að hundunum hefur verið ráðstafað og eru þeir nú komnir inn á ný/nýtt heimili,“ segir í bréfinu. „Fyrirkomulag við ráðstöfun á vörslusviptum gæludýrum er með þeim hætti að Matvælastofnun afhendir dýr til dýravelferðarsamtaka sem sjá um að koma dýrunum fyrir á nýju heimili eða heimilum.“ Þá hafi MAST ekki afskipti af því hvert dýrunum er ráðstafað eftir að þau eru afhent dýravelferðarsamtökum. Í lok bréfsins er bent á að hægt sé að kæra ákvörðunina til atvinnuvegaráðuneytisins. 

DV sendi MAST fyrirspurn, þar á meðal hvort gæludýr séu aflífuð án þess að fyrrum umráðamaður sé látinn vita, í svarinu segir að MAST líti ekki svo á að upplýsingaskylda nái yfir vinnulag stofnunarinnar. Maðurinn segir að samkvæmt bréfi frá því fyrr á þessu ári hafi MAST staðfest að hundarnir væru enn á lífi.

Ekki annað í stöðunni en að halda áfram

Kæra vegna ákvörðunar MAST um vörslusviptingu hundanna var lögð fram í byrjun janúar. Í tölvupósti frá ráðuneytinu til lögmannsins segir að málið hafi dregist vegna mannabreytinga auk þess að kalla hafa þurft eftir frekari gögnum og upplýsingum frá MAST. 

Ef svo fer að atvinnuvegaráðuneytið synjar kærunni, ætlið þið með málið fyrir dóm? 

„Hvað annað er hægt að gera? Við þurfum að sjá hver kostnaðurinn á því er en okkur langar ekki til að gefast upp.“

Myrkva hafi verið hjá þeim í sex mánuði og þau hafi verið búin að tengjast henni vel en ekki eins og Vinu, nú þegar svo langur tími er liðinn þá er Myrkva búin að vera lengur hjá öðrum. Maðurinn var á tímabili að þjálfa Vinu til að vera leitarhundur. „Ég þjálfaði hana í átta mánuði en það var mjög erfitt því ég var að keyra leigubíl um helgar og björgunarsveitaræfingarnar voru fyrir hádegi á sunnudögum. Ég var alveg ósofinn en náði samt átta mánuði,“ segir hann.

„Ég ól upp Vinu frá því að hún var hvolpur og hún er búin að vera meira hjá mér en öðrum. Ég var búinn að hugsa um að þegar hún yrði eldri að fá upp á hana til geta haldið línunni hennar áfram. Mig langaði að vera með hana út lífið.“