Fjölskyldu í Mosfellsbænum brá heldur betur í brún þegar grímuklæddur maður kom með hamar og mölvaði bílrúðuna hjá þeim. Maðurinn stal engu og fjölskyldan veit ekki hvers vegna hann gerði þetta. Einnig var spreyjað á girðinguna.
„Við höfum verið að velta okkur fyrir hver gæti verið þarna að gjörðum en enginn kemur til greina, hvort þetta sé bara maður í maníu,“ segir Jóhann Hlynur Ólafsson, íbúi í Þrastarhöfða í Mosfellsbænum.
Í morgun var búið að mölbrjóta rúðuna bílstjóramegin á bíl móður hans. Eins og sést á myndbandi af öryggismyndavél kom grímuklæddur maður á fjórða tímanum í nótt með hamar og mölvaði rúðuna.
Eins og sést á myndbandinu gengur hann rakleitt upp að bílnum, brýtur rúðuna og hleypur strax í burtu. En þarf reyndar að koma aftur að bílnum til að ná í hamarinn sinn sem festist í rúðunni. Allt þetta tekur ekki nema örfáar sekúndur.
Hafa engan grunaðan
Jóhann Hlynur segir að búið sé að tilkynna málið til lögreglunnar. Einnig spyrjast fyrir á samfélagsmiðlum, það er íbúagrúbbu í Mosfellsbæ, hvort aðrir hafi lent í einhverju svipuðu. Segist hann enn þá ekki vita til þess að maðurinn hafi skemmt neitt meira.
„Þess vegna erum við búin að vera senda þetta vídeó víða um og spyrjast í Mosó bærinn okkar,“ segir hann.
Aðspurður um hvort fjölskyldan hafi ekki verið brugðið að sjá skemmdirnar og þetta myndband segir hann svo vera en þau séu samt ekki óttaslegin.
„Það er bara enginn sem kemur til greina eða gæti verið í svona reiðikasti upp á móti móður minni þess vegna er enginn ótti,“ segir hann.
Spreyjað á girðingu
Einnig fundu þau að spreyjað hafi verið á trégirðingu við húsið. En erfitt er að lesa út úr því hvað stendur þar.
„Þetta virðist hafa verið spreyjað á girðinguna enginn veit hvað stendur þarna,“ segir hann.
Fólki brugðið
Færslan sem Jóhann Hlynur setti inn á samfélagsmiðla hefur fengið nokkur viðbrögð og er fólki nokkuð brugðið.
„Hvað var ég horfa á? Wtf..“ segir einn.
„Hann virðist vera búin að ákveða að skemma þennan bíl vonandi eru fleiri myndavélar í nágrenninu,“ segir ein kona.