Svanhildur Hólm, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, sótti fyrir Íslands hönd nokkuð umdeilda ráðstefnu í Washington, sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, og Stephen Miller, ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, gengust fyrir. Ráðstefnan fjallaði um vaxandi ofbeldisógn af hálfu öfgafullra, vinstri sinnaðra pólitískra hreyfinga. Ráðstefnan er nokkuð umdeild og gagnrýnendur hennar segja hana vera áróðursbragð vegna komandi þingkosninga í Bandaríkjunum í haust.
Mannlíf greindi frá þessu en utanríkisráðuneytið staðfesti einnig þátttöku Svanhildar í svari við fyrirspurn sem DV sendi ráðuneytinu í gær.
Í fyrispurninni benti DV á að engin tilkynning hefði birst um ráðstefnuna á vef utanríkisráðuneytisins. Ægir Þór Eysteinsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, sagði í svari sínu:
„Bandaríkin buðu til ráðherrafundar um The Resurgence of Political Terrorism þann 15. júlí sl.
Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum stjórnvöldum sóttu rúmlega sextíu ríki fundinn, ýmist ráðherrar, sendiherrar eða háttsettir embættismenn.
Ísland sendi ekki utanríkisráðherra til þátttöku og var því sendiherra falið að sitja fundinn fyrir Íslands hönd til að fylgjast með umræðum.“