Fréttir

Sólmyrkvinn á Íslandi og Spáni – Íslensk hótel hafa hækkað verðið miklu meira en þau spænsku

Mynd
Íslenskir hóteleigendur ætla sér að maka krókinn á sólmyrkvanum.

Hótel í Reykjavík hafa hækkað verðið miklu meira en þau spænsku þar sem sólmyrkvinn mun sjást þann 12. ágúst næstkomandi. Verðið í Reykjavík er 212 prósentum yfir meðalverði ársins.

Þetta kemur fram í greiningu miðilsins Hotel News Resource sem kannaði verðhækkanir á fjórum stöðum þar sem sólmyrkvinn mun sjást. Það er í Reykjavík og þremur spænskum borgum, A Coruna og Santiago de Compostela í Galisíu og Bilbao í Baskalandi.

127 þúsund krónur nóttin

Í greiningunni kemur fram að hótelin í Reykjavík eru að smyrja miklu meira ofan á verðið en hótelin í spænsku borgunum þremur, sem eru þó einnig að hækka verðið.

Meðalverð á hótelherbergi í Reykjavík er 1012 dollarar nóttin, eða rúmlega 127 þúsund krónur. Það er tvöfalt það sem herbergi kostaði á sama tíma í fyrra og er 212 prósentum yfir meðalhótelverði í Reykjavík árið 2026.

Mynd

Skammtímaleiguíbúðir, eins og Airbnb, hafa einnig hækkað mjög mikið í Reykjavík. Verðið er 178 prósentum hærra en á sama tíma fyrir ári.

Mun minni hækkanir á Spáni

Santiago de Compostela er ódýrasta borgin af þessum fjórum um sólmyrkvann. Þar kostar nóttin á hótelherbergi aðeins 193 dollara, eða rúmlega 24 þúsund krónur. Hækkunin frá sama tíma í fyrra er aðeins 13 prósent þrátt fyrir að sólmyrkvinn mun sjást mjög vel í borginni.

Í Bilbao kostar nóttin á hótelherbergi 315 dollara, eða rúmlega 39 þúsund krónur sem er hækkun um 35 prósent ári til árs. En þar hefur skammtímaleigan hækkað mjög mikið. Það er um 206 prósent og kostar nóttin í slíkri íbúð í borginni 1088 dollara, eða tæplega 137 þúsund krónur, á sólmyrkvanum.

Af spænsku borgunum hefur verðið hækkað mest í A Coruna, það er um 186 prósent, en sá markaður er mun minni en hinir og þar er mest uppbókað. Það er 81 prósent samanborið við 59 prósent í Bilbao, 53 prósent í Santiago de Compostela og 66 prósent í Reykjavík. Verðið í A Coruna er 347 dollarar eða tæplega 44 þúsund krónur.

Verðin einsdæmi

Í greiningunni kemur fram að Reykjavík hafi það fram yfir spænsku borgirnar að tímasetning sólmyrkvans er betri. Hann hefst um sexleytið á meðan sólin er hátt á lofti. Þetta er einn af fáum stöðum á jörðinni sem hægt er að sjá hann vel áður en það tekur að kvölda.

Mynd

Þetta skýrir að einhverju leyti gríðarlega ásókn í ferðir til Íslands, bæði til Reykjavíkur, Snæfellsness og Vestfjarða. En verðið er eins og áður segir gríðarlega hátt, meira að segja fyrir Ísland.

„Þótt Reykjavík sé almennt þekkt sem dýr borg fyrir erlenda gesti, þá eru þessi verð einsdæmi,“ segir í greiningunni.