Fréttir

Samherjamálið – Eignir lögmanns á flótta frystar

Mynd
Martha Imalwa saksóknari hefur fryst eignir lögmannsins Marén de Klerk.

Ríkissaksóknari Namibíu hefur fryst eignir lögmannsins Marén de Klerk sem metnar eru á rúman hálfan milljarð króna. Lögmaðurinn flúði Namibíu árið 2020 eftir að hann var yfirheyrður af lögreglu og er eftirlýstur þar í landi.

Dagblaðið The Namibian greinir frá þessu.

Martha Imalwa, starfandi ríkissaksóknari Namibíu, hefur fryst eignir lögmannsins Marén de Klerk og félags hans Celax Investments Number One. Eignirnar eru metnar á 75,3 milljónir namibískra dollara sem jafngildir rúmlega 570 milljónum íslenskra króna.

Lögmaðurinn yfirgaf Namibíu í janúar árið 2020 eftir að hafa verið yfirheyrður af lögreglu. Í apríl árið 2021 var gefin út handtökuskipun á hendur honum. Talið er að de Klerk haldi til í Suðu Afríku og hafa namibísk yfirvöld farið fram á framsal.

De Klerk er grunaður um skipulagða glæpastarfsemi, fjársvik, mútugreiðslur og peningaþvætti í tengslum við namibískar fiskveiðiheimildir. Hafi hann unnið fyrir fyrrverandi sjávarútvegsráðherrann Bernhard Esau sem hefur verið ákærður í málinu. Eins og flestir vita þá er Samherji eitt af þeim fyrirtækjum sem tengjast málinu og er til rannsóknar vegna mútugreiðslna.

De Klerk gaf sjálfur út yfirlýsingu í ársbyrjun árið 2021. Sagði hann að gerð hafi verið tilraun til þess að myrða hann eða ræna honum. Það er vegna vitnisburðar hans um valdamikla menn í Namibíu. Hann hafi búið yfir upplýsingum sem sýndu tengsl forsetans Hage Geingob við málið.