Fréttir

Rannsókn á andláti í Vestmannaeyjum hætt – Tvær konur voru grunaðar um aðild

Mynd
Frá Vestmannaeyjum.

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Tvær konur, sem störfuðu á hjúkrunarheimilinu, voru grunaðar um að hafa átt þátt í andlátinu og voru handteknar í febrúar en gæsluvarðhaldskröfu yfir þeim var þó hafnað.

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að konurnar hafi fengið bréf þess efnis að rannsókn hafi verið hætt og þær hafi ekki lengur réttarstöðu sakbornings. Þetta gerðist í kjölfar þess að niðurstöður krufningarskýrslu bárust í lok síðustu viku.

Rúnar Steingrímsson lögreglufulltrúi vildi aðspurður ekki segja til um það á hvaða hátt konurnar voru grunaðar um að tengjast andlátinu.