Ath. Viðkæmir eru varaðir við myndefni hér neðar í fréttinni
Sigríður Jónsdóttir, íbúi á Laugarvatni, greinir frá því á Facebook, að í morgun (miðvikudagsmorgun) hafi hún handsamað husky-hund sem hafði verið á vergangi við Mjóanessafleggjarann. Þar sem mikið sauðfé er á sumarbeit á svæðinu hafi hún strax haft áhyggjur af því að hundurinn gæti valdið skaða á búfé, enda sé vel þekkt að lausir hundar geti elt og ráðist á kindur.
Við leit á svæðinu fannst illa bitin kind en lömb hennar voru horfin. Félagi Sigríðar sendi dróna á loft til að leita yfir svæðið á meðan kindinni var komið heim og henni veitt aðhlynning.
Eftir að örmerki hundsins hafði verið lesið kom í ljós að tíkin hafði verið týnd í um tvo sólarhringa frá sumarbústað í landi Miðfells. Að sögn Sigríðar hafði ekki verið auglýst eftir hundinum og því hafi hann haft nægan tíma til að fara um stórt svæði, meðal annars um Lyngdalsheiði, Kaldárhöfða og Miðfellshraun.
Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og verður því fylgt eftir. Sigríður segir jafnframt að nú hafi sést til að minnsta kosti sex til sjö kinda sem séu án lamba. Mikill órói hafi verið í fjárhópum um morguninn og óttast sé að lömb séu týnd, særð eða jafnvel dauð.
Á næstu dögum verður svæðið rannsakað frekar með dróna. Sigríður biðlar til fólks sem verður á ferðinni á svæðinu, hvort sem er á fjórhjólum, hestum eða reiðhjólum, að hafa augun opin fyrir stökum lömbum eða særðum dýrum og láta bændur á svæðinu vita ef eitthvað finnst.
Sigríður veitti DV leyfi til að greina frá efni færslunnar og birta myndefni. Hún segir í samtali við DV að fólk þurfi að hafa í huga að hundar sem kunni að vera ljúfir og góðir í faðmi eigenda sinna sýni oft frumeðli sitt úti í náttúrunni, sérstaklega ef þeir eru týndir og óöruggir. Þess vegna sé mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir að hundar verði viðskila við eigendur og tilkynna fljótt um hvarf þeirra.
Meðfylgjandi myndir af kindinni sem varð fyrir árás hundsins eru af Facebook-síðu Sigríðar: