Markús Darri Arnoddsson, 23 ára maður á Akureyri, hefur orðið fyrir stöðugum og stigmagnandi ofsóknum af hendi nágranna síns. Mennirnir eru báðir leigjendur í félagslegu húsnæði hjá Akureyrarbæ. Ofsóknirnar náðu hámarki á laugardag þegar Markús þurfti að leita til bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri eftir líkamsárás mannsins. Markús var þá úti á svölum heima hjá sér þegar nágranninn kom þangað og réðst á hann.
„Hann greip um hálsinn á mér og lyfti mér upp, sveiflaði mér um og utan í stólana sem eru á svölunum hjá mér. Ég rétt slapp úr hálstakinu og reyndi að kalla á hjálp. Hann hleypti mér ekki inn. Góður nágranni skarst í leikinn og reyndi að fá hann til að stoppa. Það gekk ekki, þarna var ég kominn í „blackout“ og man ekki mikið. Hann kýlir mig en ég kemst fram hjá honum og dríf mig inn í íbúð. Þar hringdi ég á lögregluna sem loksins kemur og handtekur fíflið,“ segir Markús en hann staðhæfir að lögreglan hafi ekki sinnt útköllum fyrr en núna, eftir grófar og langvarandi ógnanir mannsins í sinn garð.
Sem fyrr segir hefur áreitið stigmagnast en það hófst um það leyti sem Markús flutti inn í húsið seint á síðasta ári.
„Þá voru þetta aðallega einhver skítakomment þar sem hann var að gera lítið úr mér, svo bara stigmagnast þetta og hann fer að hóta mér ofbeldi og svo fer hann að eyðileggja eigurnar mínar. Síðan gerist þetta á laugardaginn og það var það versta.“
Skítakommentin sem nágranninn eys yfir Markús snúast um það að Markús er trans maður. Vill Markús meina að nágranninn sé þar knúinn áfram af neikvæðri umræðu um trans fólk.
„Þessi áróður sem Miðflokkurinn og Sigmundur Davíð og allir þeir hafa verið að spúa, hann er að hafa svona áhrif í samfélaginu þannig að fólki finnst þetta bara vera allt í lagi. Það er ansi hart að vera næstum drepinn fyrir að vera það sem ég er,“ segir Markús.
Býr við stöðuga ógn en lítið um aðgerðir
Þrátt fyrir að maðurinn hafi ofsótt og ógnað Markúsi lengi var það fyrst á laugardaginn sem lögregla kom á vettvang og handtók manninn. „Þetta var í fyrsta skipti sem hann er handtekinn út af einhverju sem hann gerir mér. En hann fór ekki einu sinni í gæsluvarðhald, hann var bara látinn sofa úr sér og var mættur heim aftur 8 næsta morgun.“
Aðspurður segir Markús að maðurinn hafi ekki verið til friðs eftir handtökuna en ekki hafi þó komið til líkamlegra átaka aftur. „Ég reyni að forðast hann en ef hann sér mig úti þá byrjar hann að arga og garga eitthvað.“
Þess má geta að nágranninn hefur sakaferil að baki, meðal annars fyrir ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum. Markús segir hann einnig hafa ítrekað þverbrotið húsgreglur, t.d. með því að vera með rusl í garðinum. „Svo er líka regla að maður eigi að hafa svefnfrið eftir miðnætti en það gengur oft ekki því þá er hann argandi og gargandi, blindfullur úti. Hann hefur brotið allar húsreglur sem ég veit um síðan ég flutti inn. Ég hef sagt við bæinn: Til hvers eru húsreglur ef það þarf ekki að fylgja þeim?“
DV spyr Markús hvort maðurinn hafi ekki fengið tiltal frá bænum. „Jújú, hann hefur fengið mörgum sinnum tiltal og viðvaranir en það er bara ekki gert neitt meira en það. Hann er bara búinn að gleyma öllu slíku eftir smástund og honum er alveg sama. Hann veit að það eru engar afleiðingar.“
Markús segir lögreglu og Akureyrarbæ hafa vísað hvort á annað varðandi ofsóknir nágrannans gegn sér. „Bærinn hefur sagt að þetta sé bara hreint og beint lögreglumál og ég þurfi að tala við lögregluna. Ég hringi í lögregluna og lögreglan segir að ég þurfi að tala við bæinn. Það benda allir hver á annan. Akureyrarbær segir við mig að allir verkferlar séu í gangi en ég sé ekkert vera að fara að gerast næstu mánuði.“
Markús fékk áverkavottorð á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hefur kært manninn til lögreglu. „En kæran er ekki komin á neitt stig, það er ekki einu sinni búið að boða mig í skýrslutöku,“ segir hann. Hann sér því enga lausn í sjónmáli og þarf áfram að búa við þá yfirvofandi ógn sem framferði nágranna hans felur í sér.
DV sendi fyrirspurn um málið til Akureyrarbæjar og spurði hvort verið væri að vinna að lausn þess. Sé ekki hægt að veita upplýsingar um einstök mál var beðið um almennt svar við því til hvaða úrræða sé gripið ef íbúar félagslegs húsnæðis brjóti húsreglur og ógni nágrönnum. Svar barst ekki við vinnslu fréttarinnar en hún verður uppfærð þegar og ef svar berst síðar.