Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað manndrápsmálinu gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni frá. Héraðsdómur telur að Skúla hafi þegar verið refsað þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi.
Vísir greindi fyrst frá.
Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Það er vegna andláts sjúklings á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Málið vatt svo upp á sig og fjölgaði í hópi aðstandenda sem taldi hann hafa valdið ótímabærum dauðsföllum á stofnuninni.
Landlæknir svipti Skúla Tómas leyfi árið 2021 en hann hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu. Fékk hann leyfið aftur árið 2024.
Skúli Tómas greinir frá frávísuninni í færslu á samfélagsmiðlum. Hann segir:
„Kæru vinir. Í morgun var ákæru á hendur mér vísað frá dómi. Niðurstaða dagsins er mikill léttir. Hvert sem framhald málsins verður treysti ég því að niðurstaðan verði mér í hag og kvíði henni alls ekki. Við erum með sannleikann að vopni og hann mun á endanum sigra eins og ég hef ávallt haldið fram en mátt segja frá vegna þagnarskyldu.“
Að sögn lögmanns Skúla Tómasar byggir frávísunin á því að bannað sé að refsa mönnum tvisvar eða láta gangast undir tvöfalda málsmeðferð út af sama málinu. Missir lækningaleyfisins á sínum tíma hafi verið refsing.