Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir Kára Stefánsson vera undarlegan mann. Tilefni skrifa Jóns Steinars eru greinaskrif Kára um sölu áfengis en Kári er alfarið á móti því að einkaaðilar sinni sölu áfengis og hefur kallað eftir því að tekið verið á málunum. Gagnrýndi Kári Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra harðlega fyrir að gera ekkert í málinu.
Sjá frétt: Kári og Arnar á öndverðum meiði:„Hvergi telst það til fyrirmyndar“
Jón Steinar fer hörðum orðum um Kára og afstöðu hans í færslu á Facebook.
„Kári Stefánsson er undarlegur maður. Hann berst gegn því að áfengi sé selt í verslunum sem það vilja selja. Fallast má það með honum að dómsmálaráðherra beri að fara að lögum, þ.m.t. lögum og dómsniðurstöðu sem hafa talið þessa sölu ólöglega eins og staðið hefur verið að henni,“ segir Jón Steinar. „Það er reyndar frekar undarlegt að svo skuli vera því áfengi er selt löglega hverju götuhorni hér á landi, á veitingastöðum og í krám. Menn geta hvarvetna gengið inn á slíka sölustaði og keypt sér áfengi.“
Hann segir að afstaða Kára ráðast af forræðishyggju: „Afstaða Kára virðist helst ráðast af því að hann er sósíalisti sem er andvígur frjálsri athafnasemi einstaklinga. Dómsmálaráðherra ætti, öndvert við málflutning Kára, að bregðast við ástandinu með því að fella úr gildi allar hömlur á sölu þessarar neysluvöru,“ segir Jón Steinar. „Hún er ekkert frábrugðin sölu á annarri vöru, þ.m.t. á stöðum sem, eins og að framan segir, selja hana hverjum sem vill kaupa. Viðhorf Kára helgast af forræðishyggju hans og er eins og ómur úr fortíðinni.“
Vilhjálmur Egilsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að viðskipti með áfengi án aðkomu ÁTVR geti verið lögleg.
„.Áfengi í eigu erlendra aðila er geymt í tollvörugeymslu og því “utan landamæra”. Einstaklingar geta keypt áfengi erlendis eða í fríhöfninni og flutt inn “yfir landamærin”. Þegar einstaklingur kaupir áfengi af erlendum aðila sem afgreitt er úr tollvörugeymslu innanlands þarf að skrá innflutninginn rétt þannig að einstaklingurinn sé hinn formlegi innflytjandi og greiði af vörunni viðeigandi skatta og skyldur á leiðinni “yfir landamærin”,“ segir Vilhjálmur.
„Sé rétt staðið að skráningu og skilgreiningu viðskipta eru þau fyllilega lögmæt.“