Íslenskt par flúði af íbúðarhóteli á Tenerife vegna ástands íbúðarinnar og iðandi kakkalakka sem voru í hverjum krók og kima. Komu þeir úr gati bak við ísskápinn og var íbúðin morandi. Parið fær ekki endurgreitt nema lítinn hluta og fær ekki stuðning frá bókunarsíðunni.
„Þeir voru upp á kaffivélinni. Uppi á borði. Á gardínunum. Á rúminu. Inni í öllum skúffum og hillum. Þeir voru út um allt. Þetta var iðandi skordýrapleis. Þetta var bara viðbjóður,“ segir Sylvía Magnúsdóttir sem ásamt unnusta sínum Davíð Erni Ingólfssyni þurftu að flýja af íbúðarhóteli á Amerísku ströndinni á Tenerife.
Brotnir stólar og óhreinir veggir
Hótelið heitir Las Americas Panoramic Ocean Views nálægt Bobo ströndinni og Playa de Troya á þessum vinsælasta ferðamannastað eyjunnar sem margir Íslendingar þekkja. En þó að staðurinn sé vinsæll er ekki öruggt að gistingin sé góð eins og hjónin fengu að kynnast.
Parið pantaði tvær vikur á hótelinu á bókunarsíðunni Booking. En þegar þangað var komið leit íbúðin allt öðruvísi út en myndirnar á bókunarsíðunni.
„Hótelið lítur ekki svona út eða herbergið. Þetta er bara greni,“ segir Sylvía. „Veggirnir voru kolsvartir og rúmfötin voru örþunn og óhrein. Handklæðin voru óhrein og ógeðsleg. Jújú, það var ágætis útsýni af svölunum en stólarnir voru brotnir og kommóðan var brotin.“
Uppi á kaffivélinni og á rúminu
Langverstur var samt ófögnuðurinn sem kom út úr veggnum. Kakkalakkar af stærstu sort.
Sjá einnig:
Íslendingur lenti í skelfilegri kakkalakkaplágu á Tenerife – Vaknaði við kvikindin skríðandi ofan á sér
„Hann sá einn kakkalakka og drap hann. En svo komu fleiri og fleiri og fleiri. Hann reif ísskápinn frá og þar var gat í veggnum. Þetta var bara viðbjóður. Ég hef aldrei séð eins stóra kakkalakka,“ segir Sylvía. „Þeir voru upp á kaffivélinni. Uppi á borði. Á gardínunum. Á rúminu. Inni í öllum skúffum og hillum. Þeir voru út um allt. Þetta var iðandi skordýrapleis.“
Bauðst aðeins 30 prósent til baka
Parið lét ekki bjóða sér þetta og flúðu úr íbúðinni og fundu aðra gistingu. En þegar þau vildu fá endurgreitt vegna ástands íbúðarinnar og kakkalakkaárásarinnar lentu þau á vegg.
„Við heyrðum frá eigandanum og hann var ekki tilbúinn að gera neitt. Vildi bara færa okkur um íbúð en við héldum nú ekki. Við vorum ekki sátt við það. Hann var tilbúinn að gefa okkur 30 prósent til baka en við vildum fá 13 daga til baka,“ segir hún.
Gagnrýnir hún bókunarsíðuna Booking fyrir að standa ekki betur á bak við fólk í þeirra stöðu.
„Booking er ekki að standa sig í að styðja við bakið á þeim sem eru að leigja í gegnum þá. Ef eigandinn segir nei þá þýðir það bara nei,“ segir Sylvía og bendir fólki á að vera á varðbergi. Hefur parið einnig reynt að vara fólk við á síðum eins og Tripadvisor og á Íslendingasíðu á Facebook.