Fréttir

Gauti segir þetta endalok áróðursaðferðarinnar: „Mikil ógurleg móðursýki og ofsi er þetta í þér“

Mynd
Jakob Bjarnar Grétarsson, Gauti B. Eggertsson, Napóleon úr Dýrabæ, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Bubbi Morthens. Samsett mynd.

Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði við Brown-háskóla, segir að nú séum við að upplifa endalok gamallar áróðursaðferðar.

„Í áratugi hefur dugað að endurtaka sömu fullyrðinguna aftur og aftur. Flestir höfðu hvorki tíma né aðgang að frumheimildum til að sannreyna hana. Nú er það búið,“ segir hann í færslu á Facebook.

„Hver sem er getur tekið orðaskipti á Facebook, sett þau inn í Claude eða ChatGPT, krafist frumheimilda og fengið sjálfstætt mat á því hvað stenst og hvað ekki.“ Gauti segir að hann hafi prófað þetta í sinni nýjustu ritdeilu við Hannes Hólmstein Gissuarson, prófessor emeritus.

Endurtaki sífellt sömu fullyrðingarnar

Hannes ritaði í gærkvöldi færslu þar sem hann nafngreinir Gauta sérstaklega með fullu nafni og segir að hann endurtaki sífellt sömu fullyrðingarnar. 

Hannes segir að talað sé um samninga en ekki aðildarumsókn. „Auðvitað er þetta aðildarumsókn. Þetta er endurnýjun á aðildarumsókninni frá 2009,“ segir Hannes.

Í öðru lagi sé talað um varanlegar undanþágur og nefnir hann gervigreind sérstaklega. „En forsætisráðherra Hollands hefur þegar sagt, að það komi ekki til greina, og hollenska þingið hefur samþykkt sérstaka ályktun með 146 af 150 atkvæðum um, að það komi ekki til greina. Allir vita, hvað Írar, Portúgalir og Spánverjar hugsa. Hvers vegna sagði ráðherrann franski þá ekki í gær, að varanlegar undanþágur gætu komið til greina? Hann vildi ekkert um það segja, og það merkir aðeins eitt.“

Í þriðja lagi þá sé Evrópusambandið ekki að koma sér upp her. „En ráðamenn ESB stefna leynt og ljóst að því og leyna því hvergi.“

Ógurleg móðursýki og ofsi

Gauti svarar honum og segir: „Mikil ógurleg móðursýki og ofsi er þetta í þér Hannes minn. En takk fyrir að muna eftir að kenna mig við mína elskulegu móður, henni þykir alltaf svo vænt um þegar fólk man eftir því. Það gera allt of fáir,“ segir hann. „Það er líka dálítið erfitt að fá Bandaríkjamenn til að bera fram Bergþóruson, sem auðvitað veldur vissum vonbrigðum.“

Gauti fer yfir þetta lið fyrir lið. „Kosið er ekki um aðild eða nýja aðildarumsókn, heldur hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Aðild yrði borin undir þjóðina sérstaklega,“ segir hann. Í öðru lagi þá sé það ósannað að ekki fáist varanlegar undanþágur. „Holland hefur lýst andstöðu við undanþágu og getur beitt neitunarvaldi. Það sannar ekki fyrirfram hver niðurstaða samninga verður, fremur en yfirlýsingar íslenskra stjórnvalda um samningsmarkmið. Að sama skapi er ósannað að Ísland muni fá varanlega undanþágu.“ Þá sé það rangt að varanlegar undanþágur séu ómögulegar og að franski ráðherrann hafi ekki útilokað undanþágur.

Gauti segir það hreinlega rangt að Evrópusambandið ætli að koma sér upp her. „ESB hefur hvorki eigin fastaher né heimild til að stofna hann einhliða. Sameiginlegar varnir krefjast einróma samþykkis allra aðildarríkja og afgreiðslu samkvæmt stjórnskipun hvers ríkis. Nokkur ríki eru hlutlaus og önnur hafna Evrópuher. Því er stofnun hans ólíkleg án grundvallarbreytingar á sáttmálum og pólitískri afstöðu ríkjanna. Aukið varnarsamstarf er ekki sami hlutur og sameiginlegur her.“

„Þú varst að rífast við botta“

Hannes líkir þessu við Dýrabæ eftir George Orwell, þetta sé íslenska útgáfan. „Sauðirnir jörmuðu í sífellu: Ferfætlingar góðir, tvífætlingar vondir. Ferfætlingar góðir, tvífætlingar vondir. Ég er annars farinn að halda, að jámenn séu að nota gervigreind til að skrifa athugasemdir. En sama er mér. Ég er ekki að skrifa þetta fyrir gervigreindina. Ég er að skrifa þetta fyrir þann fjölda fólks, sem tekur málið alvarlega, enda er þetta alvörumál. Það er að spá í þetta og lesa færslur á netinu.“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens svaraði honum þá: „Og sauðirnir höfðu rétt fyrir sér í skáldsögunni sem og í þeim raunveruleika sem þeir lifa í dag það er staðreynd.“

Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, sló á létta strengi og sagði við Gauta:

„Þú veist að Hannes fer í frí hálfu ári fyrir allar kosningar. Þú varst að rífast við botta.“

Þá var Gauti spurður að því hvernig einföld atkvæðagreiðsla sé svona mikið mál.

„Skil það ekki,“ segir Gauti. „Svona eins og ef ég er að keyra minn gamla bíl og einhver spyr mig hvort ég vilji skipta honum fyrir annan. En ég vill bara alls ekki fá að vita hvaða eiginleika hinn bíllinn hefur, hverrar gerðar hann er, hvernig hann keyrir, kostnaður etc. Skil ekki hvernig meiri upplýsingar geta verið verri en minni.“