Bandarískur ferðamaður sem veiktist alvarlega á flugi til Íslands segir reynslu sína af íslenska heilbrigðiskerfinu hafa komið sér verulega á óvart.
Í færslu sem vakið hefur töluverða athygli á Reddit-hópnum Iceland, þar sem ferðamenn deila reynslu sinni af Íslandsferðum, hrósar hann sérstaklega skilvirkni Læknavaktarinnar og skilvirkri þjónustu sem hann fékk í apóteki.
Grét tímunum saman
Ferðamaðurinn segist hafa orðið veikur í fluginu til Íslands. Hann lýsir dæmigerðum einkennum öndunarfærasýkingar, þar á meðal hrolli, hita, nefstíflu, hálsbólgu og beinverkjum. Þá hafi snjallúr hans varað hann við óeðlilega háum hjartslætti á meðan hann stóð í vegabréfaeftirlitinu eftir lendingu í Keflavík.
Maðurinn segir að það versta hafi verið að hægra eyrað opnaðist ekki eftir flugið. Þrýstingurinn hafi aukist jafnt og þétt og sársaukinn orðið svo mikill að hann hafi náð út í kjálka, kinn, tennur og tannhold.
„Sársaukinn var svo mikill að ég grét tímunum saman,“ skrifar hann.
Þjónustan gekk hratt fyrir sig
Hann fór fyrst í apótek þar sem lyfjafræðingur ráðlagði honum að nota Otrivin-nefúða. Þótt nefstíflan hafi minnkað og eyrað opnast örlítið hafi það ekki dugað til og hann hafi jafnframt fengið eyrnasuð og verið áfram með skerta heyrn á hægra eyra.
Vegna verkjanna hafi hann sofið lítið sem ekkert og jafnvel gleymt að drekka vatn þar sem honum leið svo illa.
Daginn eftir aflýsti hann skipulagðri skoðunarferð og hélt þess í stað á Læknavaktina. Þar greiddi hann um 165 Bandaríkjadali fyrir komuna þar sem hann er ekki tryggður innan íslenska heilbrigðiskerfisins.
Ferðamaðurinn segir biðstofuna hafa verið nokkuð fulla en að þjónustan hafi engu að síður gengið hratt fyrir sig. Hann segist hafa beðið í um hálftíma áður en hann komst að hjá lækni, sem greindi hann með eyrnabólgu, ávísaði sýklalyfjum og taldi jafnframt líklegt að hann glímdi við veirusýkingu.
Sérstaklega vakti það athygli mannsins hversu einfalt og skilvirkt fyrirkomulagið væri miðað við það sem hann ætti að venjast í Bandaríkjunum. Þar hefði hann oft þurft að útskýra sömu einkennin fyrir mörgum starfsmönnum, en á Íslandi hafi hann aðeins þurft að segja sögu sína einu sinni.
Hann hrósar einnig því að sjúklingar séu kallaðir inn með númerum í stað nafna, sem hann segir auka friðhelgi einkalífsins.
Óþekktur hraði
Að læknisheimsókn lokinni fór hann niður í apótek þar sem lyfseðillinn var afgreiddur á innan við fimm mínútum. Hann segir slíkan afgreiðsluhraða nánast óþekktan í bandarískum apótekum, þar sem biðin sé oft 30 til 60 mínútur.
Heildarkostnaður við læknisheimsóknina, sýklalyfin og leigubíla til og frá Læknavaktinni nam samkvæmt ferðamanninum um 268 Bandaríkjadölum, eða sem nemur um 34 þúsund krónum miðað við gengi dagsins í dag.
Þrátt fyrir að hafa eytt hluta Íslandsferðarinnar veikur segist hann afar ánægður með þá þjónustu sem hann fékk og hrósar íslenska heilbrigðiskerfinu fyrir hraða, skilvirkni og fagmennsku.
Hann segist að endingu hafa viljað deila reynslu sinni til að hjálpa öðrum sem kynnu að veikjast á ferðalagi um Ísland.