Fréttir

Ungur drengur svalt til dauða á herstöð og pylsuhundur fannst í ruslatunnu

Mynd
Æfingar í Fort Benning herstöðinni í Georgíu þar sem hið sorglega mál kom upp. Mynd/Bandaríkjaher

Bandarískur hermaður og unnusta hans gætu hlotið ævilangan fangelsisdóm eftir að sonur þeirra svalt til bana á herstöðinni þar sem þau bjuggu. Einnig voru þrír hundar þeirra sveltir til bana.

Tímaritið People greinir frá þessu.

Ladarrion McCray, 23 ára hermaður, og unnusta hans Emma Bradshaw, ári yngri, hafa verið ákærð fyrir manndráp og vanrækslu sonar þeirra sem og fyrir dýraníð. Drengurinn og þrír hundar dóu þegar fjölskyldan bjó á herstöðinni For Benning í Georgíufylki í vetur. McCray hafði þá tiltölulega nýlega verið fluttur þangað.

Tveggja vikna svelti leiddi til dauða

Í ákæruskjalinu kemur ekki fram hvað drengurinn hét eða hversu gamall hann var en hann var mjög ungur. En það kemur fram að næringu hafi verið haldið frá honum frá 14. til 28. janúar, eða um tveggja vikna skeið. Var þetta þess valdandi að drengurinn lést.

Saksóknari fullyrðir að foreldrarnir hafi logið að rannsóknarlögreglu hersins þegar þeir hafi sagt í yfirheyrslu að drengurinn hafi ekki sýnt nein veiklunarmerki áður en hann lést. Vanræksla þeirra hafi valdið því að drengurinn hafi soltið til bana.

Hundshræ í ruslatunnu

Í ákæruskjalinu er einnig fjallað um dýraníð. Það er að parið hafi vanrækt þrjá hunda og einn þeirra drapst, það er hundur af tegundinni dachshund, það er svokallaður pylsuhundur.

Parið er sakað um að hafa ekki gefið hundunum að éta, ekki haft nægt drykkjarvatn fyrir þá, loftræstingu eða hreinlætisaðstöðu. Hræ pylsuhundsins fannst í ruslatunnu við heimili parsins og krufning sýndi fram á að vannæring hafi valdið dauða hans. Hinir tveir hundarnir, veiðihundur og dobermann, fundust alvarlega vannærðir á heimilinu.

Neita sök

McCray og Bradshaw hafa verið ákærð fyrir manndráp, vanrækslu barns, að bera ljúgvitni, dýraníð og fleira. Ef að þau verða fundin sek geta þau átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.

Bæði hafa þau neitað sök í málinu. Hefur þeim báðum verið sleppt úr varðhaldi á 10 þúsund dollara tryggingu fram að réttarhöldunum. Það er um 1,2 milljón krónum. McCray hefur verið leystur tímabundið frá störfum innan hersins á meðan málið stendur yfir.