Fréttir

Tveir handteknir eftir alvarlega líkamsárás þar sem hníf var beitt

Mynd

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo einstaklinga í miðborginni í gærkvöldi eða nótt vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hníf var beitt.

Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku en gerendur voru vistaðir í fangaklefum. Frekari upplýsingar um málið koma ekki fram í skeyti lögreglu, svo sem um líðan þess sem fyrir árásinni varð.

Þá var ráðist á einstakling fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Gerandi flúði af vettvangi og árásarþoli var fluttur á slysadeild.

Einn var svo handtekinn í miðborginni vegna vopnalagabrots og vörslu og meðferðar fíkniefna. Maðurinn var í mjög annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu og var fluttur á bráðamóttöku.

Loks var óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna einstaklinga sem voru til vandræða á móttökustöð Sorpu í hverfi 110. Frekari upplýsingar koma ekki fram í skeyti lögreglu.