Fréttir

Stór hópur íslenskra barna strandaglópar í Gautaborg eftir að Icelandair felldi niður flug

Mynd

Flugi Icelandair frá Gautaborg í gær var aflýst með þeim afleiðingum að stór hópur íslenskra barna sem tóku þátt í knattspyrnumótinu Gothia Cup voru í reiðileysi í flugvellinum í Gautaborg ásamt liðsstjórum sínum. Var hópurinn í verulegum vandræðum þar sem útvega þurfti gistingu með skömmum fyrirvara.

Fluginu var seinkað þráfaldlega uns því var aflýst undir kvöld en þá höfðu börnin beðið á flugvellinum í yfir fjórar klukkustundir. 

Um 700 börn íslensk börn og ungmenni, á aldrinum 11 til 18 ára, tóku þátt í mótinu en sá hluti hópsins sem lenti í þessum hremmingunum er á 14. ári. Mótið stóð yfir dagana 12. til 18. júlí.

DV náði sambandi við móður einnar stúlku í hópnum í morgun og staðfesti hún að fararstjórum hefði tekist að finna gistingu fyrir hópinn fyrir síðustu nótt. Hópur dóttur konunnar er um 60 stúlkur en móðirin segir að mun hafi fleiri keppendur hafi átt far með vélinni. Mjög erfiðlega hafi gengið að ná sambandi við aðila hjá Icelandair til að fá upplýsingar. 

Flogið í dag

DV leitaði svara hjá Icelandair í gærkvöld og í morgun um málið. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi hjá Icelandair, sagði í samtali við DV að hann væri að afla upplýsinga um málið:

„Ég veit að þetta er vegna þess að það var smávægileg bilun í flugi sem var að fara frá Stokkhólmi og þessi vél var í þessu verkefni frá Gautaborg líka en ég bíð eftir frekari upplýsingum. En það verður flug í dag frá Gautaborg,“ sagði Guðni en frekari svör berast síðar í dag. 

UPPFÆRT KL. 15.15: 

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi hjá Icelandair, sendi eftirfarandi svar við fyrirspurnum DV um málið:

„Flugi frá Gautaborg í gær var aflýst sökum þess að smávægileg bilun kom upp í flugvél. Aukaflug var sett upp í dag í staðinn. Þar sem fluginu var aflýst með skömmum fyrirvara var ákveðið að bjóða farþegum að bóka sér hótel á eigin vegum en fá kostnaðinn greiddan frá flugfélaginu. Upplýsingar voru sendar eftir því sem málið þróaðist á alla þá farþega sem voru með tengiliðaupplýsingar skráðar á bókunina. Af þessu tilefni er vert að brýna fyrir öllum sem eiga bókað flug með Icelandair að tryggja að tengiliðaupplýsingar séu rétt skráðar.“