Fréttir

Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá

Mynd

Einstaklingur lést eftir að hann féll í Ölfussá í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Viðkomandi féll í Ölfusá um kl. 19 í gærkvöldi. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslu Íslands brugðust við með hæsta forgagni. Viðkomandi fannst neðar í ánni  eftir stutta leit og var bjargað á land og í framhaldi fluttur á bráðamóttöku Landspítala með þyrlu gæslunnar.

Tildrög þess að viðkomandi hafnaði í ánni eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglu á Suðurlandi.