Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir að velferð dýra vegi þyngra en atvinnuhagsmunir og telur tímabært að hvalveiðum í atvinnuskyni verði hætt.
Þetta kemur fram í grein sem Kolbrún skrifar í Morgunblaðið í dag.
Kolbrún segir að á þeim áratugum sem atvinnuhvalveiðar hafa verið stundaðar hafi eflaust margir endurmetið afstöðu sína til þeirra og það sé eðlilegt.
„Samfélög þróast, þekking eykst og gildismat breytist. Það sem áður þótti sjálfsagt getur kallað á endurmat á nýjum tímum. Í dag gerum við ríkari kröfur en áður um velferð dýra og sættum okkur síður við óþarfa þjáningu þeirra, hvort sem um er að ræða húsdýr, búfé eða villt dýr,“ segir hún.
Hún bendir á að þótt afstaða fólks breytist sé engu að síður hægt að bera virðingu fyrir þeim sem hafa starfað við hvalveiðar.
„Það má hafa skilning á því að fyrir suma tengjast veiðarnar sögu, hefðum og atvinnu. Í mínum huga vegur velferð dýra hins vegar þyngra,“ segir hún.
Kolbrún nefnir í grein sinni að þótt reynt hafi verið að þróa aðferðir við hvalveiðar og draga úr þjáningu dýranna sé markmiðið engu að síður að fella dýrið og því miður takist það ekki alltaf samstundis.
„Myndir og lýsingar af því hvernig hvalir berjast fyrir lífi sínu hafa haft djúp áhrif á mig. Ég á erfitt með að sætta mig við að dýr þurfi að sæta þjáningu vegna atvinnuveiða af þessu tagi.“
Kolbrún segist gera sér grein fyrir því að margir verði áfram ósammála þessum sjónarmiðum. „En ég tel hollt fyrir okkur sem samfélag að staldra við og spyrja hvort starfsemi sem við höfum lengi talið sjálfsagða samræmist þeim gildum sem flestir vilja byggja á.“
Kolbrún segir að við höfum áður endurmetið afstöðu okkar í stórum málum þegar aukin þekking og breytt viðhorf hafa kallað eftir því. „Það er ekki merki um veikleika heldur vilja til að læra og horfa fram á veginn,“ segir Kolbrún og bætir við að það sé viðurkenning á því að enginn hafi svör við öllu og að aukin þekking geti leitt okkur að annarri niðurstöðu en áður. Að hennar mati er niðurstaðan skýr.
„Velferð dýra vegur þyngra en fyrri rök fyrir hvalveiðum í atvinnuskyni. Því styð ég heils hugar að veiðunum verði hætt. Þessi afstaða er í samræmi við þá stefnu sem Flokkur fólksins hefur markað í dýravelferðarmálum. Ég tel að Íslendingar séu tilbúnir til að stíga þetta skref. Ekki vegna þess að við afneitum fortíðinni heldur vegna þess að við viljum móta framtíð sem endurspeglar gildi sem við teljum rétt í dag. Þess vegna fagna ég því að nú sé verið að undirbúa það skref. Sjálf tel ég að tími hvalveiða í atvinnuskyni sé liðinn.“